KYLFINGUR 2025

I KYLFINGUR I 27 Íslandsmót golfklúbba í 1. deild karla fór fram á Leirdalsvelli Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar dagana 24.-26. júlí 2025. Heimalið GKG mætti GR í úrslitum mótsins. Bæði lið léku frábært golf í mótinu, en GR stóð uppi sem sigurvegari eftir 3-2 sigur í úrslitum. Þetta er í 26. skipti sem GR sigrar í efstu deild Íslandsmóts golfklúbba. Alls kepptu átta lið um Íslandsmeistaratitil golfklúbba 2025. Í B-riðli var hart barist um sæti í undanúrslitum. Golfklúbbur Reykjavíkur vann alla sína leiki í spennandi viðureignum. GR sigraði GA í seinni undanúrslitaleiknum, 3.5-1.5 Úrslitaleikurinn Sveitir GKG og GR mættust í úrslitaleiknum sem var gríðarlega spennandi. Leikurinn spilaðist jafn frá upphafi, og lengi vel stefndi í að fyrri fjórmennings leikurinn myndi skera úr um sigurvegara mótsins. Þar léku Dagbjartur Sigurbrandsson og Jóhann Frank Halldórsson saman fyrir sveit GR og Róbert Leó Arnórsson og Kristófer Orri Þórðarson fyrir GKG. Dagbjartur og Jóhann leiddu með tveimur holum þegar fjórar voru eftir. Kristófer og Róbert náðu að minnka muninn, en það reyndist ekki nóg. GR sigraði leikinn 1/0. Elvar Már og Sigurður Bjarki höfðu tapað sínum fjórmenningi, þannig að staðan var jöfn fyrir tvímenningsleikina. Í fyrsta leiknum mættust Tómas og Aron Snær og hafði Tómas betur 2/1. Hákon Örn mætti Gunnari Þór og sigraði Hákon nokkuð örugglega 4/3 og 3 vinningar komnir í hús og sigurinn í höfn. Jóhannes tapaði síðan fyrir Hlyni Bergssyni 4/2. GR sigraði því GKG með þremur vinningum gegn tveimur og eru því Íslandsmeistarar golfklúbba 2025 Golfklúbbur Reykjavíkur hefur sigrað oftast allra klúbba eða 26 sinnum eins og áður sagði. Árið 2025 var sannkallað sigurár hjá afreksmönnum GR í karlaflokki. Ásamt því að verða Íslandsmeistari golfklúbba á GR Íslandsmestara í holukeppni og höggleik 2025. Sigurlið GR. Fv.: Dagbjartur Sigurbrandsson, Böðvar Bragi Pálsson, Jóhann Frank Halldórsson, Elvar Már Kristinsson, Tómas Eiríksson Hjaltested, Sigurður Bjarki Blumenstein, Hákon Örn Magnússon, Jóhannes Guðmundsson, Gísli Guðni Hall formaður GR og liðsstjóri og Birkir Páll Reynisson aðstoðarliðsstjóri. GR ÍSLANDSMEISTARI GOLFKLÚBBA 2025

RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==