Daði Kolbeinsson Skotinn Duncan Wilson Campbell, óbóleikari, á leið til Íslands, 23. janúar 1973, með sex mánaða samning við Sinfóníuhljómsveit Íslands í vasanum. Flugið til Íslands er honum í fersku minni því þann sama dag hófst Vestmannaeyjagosið og tók flugið mið af því. Örlögin höguðu því svo að hann er hér enn. Fékk fastráðningu hjá Sinfóníunni og gerðist íslenskur ríkisborgari árið 1983. Samkvæmt íslenskum lögum á þeim tíma varð hann að bera íslenskt nafn og breytti hann nafni sínu í Daði Kolbeinsson. Daði starfaði sem óbóleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands til fjölda ára. Nú spilar hann golf flesta daga ársins í hvaða veðri sem er enda mikill útivistar- og göngugarpur. Kylfingur náði tali af Daða og forvitnaðist um hans hagi, frá æsku hans í Skotlandi og til dagsins í dag. SKOSKI ÓBÓLEIKARINN OG KYLFINGURINN
RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==