KYLFINGUR 2025

I KYLFINGUR I 39 tvö spræk börn voru mætt, bauðst okkur, með vinahjónum, að kaupa lóð í Hrunamannahreppi og sumarbústaðarsmíði hófst. Og þá byrjaði ballið! Stutt frá var golfvöllur Halldórs Guðnasonar á Efra-Seli við Flúðir. Þetta byrjaði hjá mér með smá fikti, ég var með nokkrar gamlar kylfur sem foreldrar mínar höfðu átt fyrir stríð, en að lokum fór ég til Jóns Hjartarsonar í tíma og hann reyndist mér vel. Nú fann ég að fjallgöngum færi að fækka, en þörfin fyrir að hreyfa sig hafði ekki minnkað. Eftir nokkra hringi á Thorsvelli og á Korpu var teningunum kastað. Ég sótti um hjá GR og komst inn strax. Svo bættist önnur della við, gönguskíðaferðir, sumar styttri í Hengil eða Bláfjöll, en aðrar tóku viku yfir Sprengisand eða yfir Vatnajökul, magnaðar ferðir sem gáfu mér mikið og voru gott mótvægi við kyrrsetu í hljómsveitinni á sviði Háskólabíós eða Eldborgar. Fyrir fimm árum tókst mér að klára fjórtán stærstu jökla Íslands, en þeir eru nú aðeins þrettán eftir að Ok bráðnaði. Skoti í húð og hár Sjálfsbjargarviðleitni var í hávegum höfð í fjölskyldu minni í Skotlandi. Skólafélagi minn hafði eignast Heinkel, þriggja hjóla búbblubíl, sem bilaði og þar sá ég tækifæri og keypti hann fyrir átta pund, það sem kostaði að taka vélina og gírkassa í sundur á verkstæði. Mörg kvöld lá ég á köldu og blautu bílskúrsgólfi að skipta um sveifarás og reyna að púsla saman gírkassa, kúplingu og vél sem höfðu fyllt pappakassann sem fylgdi bílnum. En að endingu gekk hann og af því að hann var þriggja hjóla mátti ég keyra löglega sextán ára gamall, ári á undan jafnöldrum mínum. Þetta var byrjunin á löngum ferli í bílaviðgerðum, enda hefur fjölskyldan alltaf verið á eldri druslum þangað til fyrir þremur árum að við keyptum nýjan bíl. Samkvæmt markmiðinu að gera allt sjálfur lærði ég líka að nútímavæða kyndinguna í fyrstu íbúðinni okkar og setja Danfoss-krana á alla ofnana, í sumarhita, þar sem þetta var vikuvinna þegar maður var að læra allt frá grunni. Næsta fasteign okkar hjóna var eldra parhús og þar kom sér vel að hafa reynslu af pípulögnum og læra að skipta um rafmagnsdósir í steyptum veggjum og draga í, en kunningi einn sá um að tengja töfluna. Alltaf gaman að læra eitthvað nýtt, og kannski aðeins að spara enda upprunalega skoskur! Ánægður GR-ingur En að golfi aftur. Hálfáttræður, tek ég níu holur daglega á Korpu með félögunum en átján af og til í Grafarholti sem mér finnst skemmtilegastur íslenskra golfvalla sem ég hef Daði ásamt fjölskyldu: Daði, Elsa María Kolbeinsdóttir, Sesselja Halldórsdóttir, Kolbeinn Tumi Daðason, Gunnhildur Daðadóttir, Björn Þór Guðmundsson, Finnur Atli Kolbeinsson, Selma Björnsdóttir. Fremst standa Guðmundur Daði Björnsson, Sigurður Þór Björnsson og Þórunn Lilja Björnsdóttir. Á gönguskíðum á Grænlandi

RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==