I KYLFINGUR I 43 Golfklúbbur Reykjavíkur endaði í 6. sæti á Evrópumóti golfklúbba sem fram fór á Cabot Bordeaux golfvellinum í Frakklandi og lauk í lok október. GR-ingar léku hringina þrjá samtals á átta yfir pari. Leikinn var höggleikur og voru tvö bestu skor af þremur talin á hverjum keppnisdegi. Í liði GR voru Dagbjartur Sigurbrandsson, Sigurður Blumenstein og Jóhannes Guðmundsson en eingöngu áhugamenn eru gjaldgengir í klúbbliðin. Dagbjartur lék hringina þrjá á pari, Sigurður á níu yfir pari og Jóhannes á fimmtán yfir. Samtals endaði liðið á +8. Smørum golfklúbburinn frá Danmörku sigraði í mótinu í annað sinn á þremur árum. Skor GR-inganna: GR Í 6. SÆTI Á EVRÓPUMÓTINU Í FRAKKLANDI Lið GR: Fv. Dagbjartur Sigurbrandsson, Sigurður Blumenstein, Jóhannes Guðmundsson og Hákon Örn Magnússon liðsstjóri.
RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==