KYLFINGUR 2025

46 I KYLFINGUR I Stefanía M. Jónsdóttir ÞANNIG VAR NÚ ÞAÐ! Hvenær varðstu félagi í GR? Ég fór fyrst á golfnámskeið hjá Sigga P, blessuð sé minning hans, haustið 1989 og gekk svo í klúbbinn næsta vor eða 1990. Ég hef verið meira og minna félagi í GR síðan. Af hverju varð golf fyrir valinu? Ég var búin að fylgjast með golfi í sjónvarpi í nokkur ár og sá fyrir mér að þetta gæti verið eitthvað fyrir mig, góð og skemmtileg útivera og frábært fjölskyldusport. En enginn í fjölskyldunni var í golfi og allir sögðu að þetta væri fyrir gamalt fólk, mér var bara alveg sama. Ég beið þolinmóð eftir að dæturnar yrðu nógu gamlar til að byrja með mér í golfi. Allavega eru tvær af þremur í golfi í dag. Það var mikill sigur að fá dæturnar í golf á unga aldri. Þegar kom að unglingsárunum vorum við saman fjölskyldan að fylgja þeim í ýmsum golfmótum um helgar yfir sumarið, það róaði mömmuhjartað að þær voru ekki á einhverju skralli niður í bæ um helgar. Hver er forgjöfin í dag? Forgjöfin mín í dag er 11,9 ég lækkaði tiltölulega hratt á fyrstu árunum mínum í golfi. Auðvitað þarf að æfa til að viðhalda forgjöfinni. Hef náð lægst 7,4 fyrir nokkrum árum, var þá alveg að springa úr stolti. Hef lengst af verið með 10,0 til 14,0. Korpan eða Grafarholt? Grafarholtið er minn uppáhalds, einhver sérstök tilfinning þegar ég spila hann, þó finnst mér báðir vellirnir hafa sinn sjarma. Grafarholtið er erfiðara á fótinn og er oft betri í ákveðnu veðri eða þegar er mikill vindur á Korpunni. Það er hinsvegar alltaf gott að geta skellt sér 9 holur á Korpunni, þá er dagurinn ekki allur undirlagður. Ég skrepp oft ein og hef gaman að því að spila með nýjum félögum í klúbbnum. Hvernig hefur þér gengið, einhverjir eftirminnilegir sigrar? Mér hefur gengið nokkuð vel, mikið verið að keppa í gegnum tíðina, bæði í meistaramóti og sveitakeppnum fyrir klúbbinn (heitir eitthvað annað í dag). Þegar ég var að byrja að keppa í meistaramóti og var búin að vinna flokkinn sem ég var í á þeim tíma þá setti ég mér markmið. Ég ætlaði að vinna alla flokka sem ég tæki þátt í. Helstu sigrar eru 1. sæti í meistaramóti í 3. flokki, 2. flokki, 1. flokki, 50 ára og eldri og 65 ára og eldri. Svo urðum við GR konur Íslandsmeistarar í sveitakeppni 50 ára í Vestmannaeyjum fyrir nokkrum árum. Ég man ekki betur en að það hafi verið í fyrsta skipti sem við unnum þessa keppni frá því hún hófst. Og nú síðast náði ég að verða í 3. sæti í 65 ára á Íslandsmóti öldunga í GKG í fyrra. Fyrir nokkrum árum eða þegar hjóna- og paramótin voru að byrja þá unnum við Bjarni Jónsson hjóna- og paramótið á Akureyri en þangað fórum við á hverju ári í mörg ár. Verðlaunin voru ekki af verri endanum þessi fyrstu ár hjóna- og paramótanna. Okkar verðlaun voru flug, gisting og golf í Naples í Flórída, ekkert smá flott algerlega ógleymanlegt. Eftirminnileg atvik eða skemmtilegar sögur? Það er óhætt að segja að við upplifum ýmislegt skemmtilegt í golfinu. Fyrir nokkrum árum var ég að spila í Grafarholtinu og spilaði alveg eins og engill, kom inn á 72 höggum og brosti auðvitað alveg hringinn. Ég var á bleiku skýi og skellti mér í golf á Korpuna daginn eftir, en þessu átti ég ekki von á, spilaði aftur á 72 höggum. Vá, ég var í vímu í marga daga. En svo tók hið hefðbundna við, einn daginn góð og hinn arfaléleg. Fyrir 14 árum vorum við fjórar vinkonur að fara í golfmót á Oddinum, daginn áður kemur í ljós að ein okkar getur ekki mætt, þá var bara að redda einhverri í hennar stað. Það vildi til að dóttir mín hafði tíma, þannig að hún kom inn í staðinn. Dóttirin kannaðist aðeins við vinkonurnar þannig að spjallið og golfið gekk eins og í sögu. Á þessum tíma var dóttir mín ein með tvö börn. Ein vinkonan var mikið að spjalla við dóttur mína þar sem hún á son sem er á sama aldri, hann var maður einsamall, í námi erlendis en í fríi á Íslandi. Hann hafði verið að tala um að kíkja á lífið um kvöldið, þannig að dóttirin tekur það loforð allavega að hún hringi í piltinn. Til að gera langa sögu stutta þá skemmtu þau sér það vel um kvöldið að þau eru hamingjusamlega gift í dag og eiga saman tvö börn. Það má eiginlega segja að við séum hjónabandsmiðlarar allavega mæður og tengdamæður þeirra. Hvað varðar golfið þá man ég nú ekki hvort við náðum vinningssætum. Hefurðu farið holu í höggi? Ég hef farið einu sinni holu í höggi og það var í æfingahring fyrir hjóna- og paramót á Akureyri, nánar tiltekið á 4. holu. Frábært högg fór í fallegum há­

RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==