I KYLFINGUR I 47 um boga beint á holu skoppaði nokkrum sinnum og beint í. Hver er sá besti sem þú hefur spilað með Það er hún eina sanna Ragga Sig. okkar. Hef spilað nokkra hringi með henni, alltaf gaman að vera með Röggu hún er frábær kylfingur og skemmtilegur félagi með gleði og kærleik í hjarta. Besti golfvöllur sem þú hefur leikið? Hver er nú bestur eða öllu heldur skemmtilegastur? Vestmannaeyjar í uppáhaldi hjá mér af íslensku völlunum. Fyrir nokkrum árum þá fórum við Bjarni oft hringinn í kringum landið á sumrin og spiluðum marga skemmtilega golfvelli, þá á leið í hjóna- og paramótið á Akureyri. En á erlendri grund hef ég mest spilað á Spáni, þar má nefna nokkra skemmtilega velli eins og La Gomera, El Valle, Valle del este, La Galiana svo einhverjir séu nefndir. Eitthvað hjá GR sem betur mætti fara? Ég er að mestu nokkuð sátt við klúbbinn minn en hefði viljað sjá inniæfingaaðstöðu miklu betri, eins og sjá má í stærri klúbbum á Reykjavíkursvæðinu. Miklar breytingar hafa og eru í gangi á báðum völlunum og eru þær mjög jákvæðar. Aðstaðan í Básum hefur batnað mikið, bæði komnir hitalampar og Trackman kerfi. Einnig finnst mér að það mætti endurskoða félagsgjöldin. Mætti ekki gera tilraun með að lækka aðeins fastagjaldið og borga t.d. 2.000 kr., sem dæmi, í hvert skipti þannig að þeir sem spila mest borga meira? Eins og allir vita er gríðarlegt álag bæði að fá rástíma og á vellina. Eitthvað að lokum? Það er gaman að sjá og upplifa hvað er mikið af eldra fólki sem er að byrja í golfi, aldrei of seint að byrja eins og einhver sagði, ein ráðlegging til þeirra sem eru að taka sín fyrstu skref í golfi. Í dag er boðið upp á golfferðir þar sem golfskóli er í boði, frábær leið til að byrja og hafa réttu handtökin eða sveifluna. Svo eru miklar líkur á að þú kynnist góðum golffélögum. Fyrsta bingó vetrarins fór fram þann 20. nóvember sl. Þátttakan var þokkaleg, tæplega 50 manns. Spilaðar voru átta umferðir og að bingói loknu voru dregnir út sex aukavinningar. Öll bingóspjöldin hafa sitt númer og er reglan sú að hafi viðkomandi fengið vinning er það vinningsspjald þá úr leik eingöngu hvað útdrátt varðar. Sú breyting var gerð frá fyrri árum að nú verða bingódagarnir í vetur á fimmtudögum í stað föstudaga hér áður og hefjast kl. 10. Næsti bingódagur, svokallað jólabingó, verður fimmtudagurinn 11. desember og hefst kl. 10. Bingónefndina, veturinn 2025–26, skipa: Ásgeir Ingvason, Halldór B Kristjánsson, Páll Bjarnason og Sigurjón Árni Ólafsson.
RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==