KYLFINGUR 2025

50 I KYLFINGUR I Á Korpunni hófst árið á Púttmótaröð GR kvenna í samstarfi við Golfa.is. Yfir 200 þátttakendur voru skráðar til leiks. Í fyrsta sinn var keppt í liðakeppni sem vakti mikla lukku. Gunnþórunn Geirsdóttir stóð uppi sem sigurvegari í einstaklingskeppni en liðið „Stubbarnir“ (Sandra, Lára, Ingunn og Kristín) sigruðu í liðakeppninni. Lokahófið heppnaðist sérlega vel og mættu yfir 140 konur og tóku þátt í gleðinni. Golfárið 2025 hjá konum í Golfklúbbi Reykjavíkur (GR) var sannkallað veisluár. Ár fullt af viðburðum, mótum og góðri stemningu. Fjöldi móta, ferða og skemmtilegra viðburða einkenndi tímabilið og tókst hvert og eitt þeirra frábærlega vel. Frá fyrstu púttmótum vetrarins til glæsilegs haustmóts í Grafarholti var dagskráin fjölbreytt og þátttakan góð. Púttmótaröðin Frá vinstri Ingunn Steinþórsdóttir, Gunnþórunn Geirsdóttir og Lára Eymundardóttir Stubbarnir sigruðu liðakeppnina.

RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==