Trackman golfhermamót Í framhaldi af púttmótaröðinni fór fram Trackman hermamót þar sem keppt var bæði í höggleik og punktakeppni. Konur gátu spilað í hvaða golfhermaaðstöðu sem er, sem er nýlunda. Signý Marta Böðvarsdóttir sigraði í höggleik með 74 högg, Elísabet Benónýsdóttir toppaði 0–28 forgjafarflokk með 46 punktum og Bryndís Agga vann í flokki 28,1–54 með 38 punkta. Þökkum Básum fyrir veittann stuðning. Í lok apríl héldu nokkrar hraustar GR konur í golfferð til Spánar með TA Sport Travel. Spilað var á Club de Golf við Barcelona við dásamlegar aðstæður og m.a. keppt í Texas-móti þar sem efstu liðin unnu til verðlauna. Ákveðið hefur verið að endurtaka leikinn haustið 2026 og búið er að gera samning við Icelandair Vita um að skipuleggja næstu GR konu ferð. Nánari upplýsingar munu koma fljótlega. Vorblómi á Hamarsvelli Vormótið á Hamarsvelli í Borgarnesi markaði upphaf sumarsins. Veðrið var eins og best verður á kosið, góð þátttaka og stemmingin einstök. Þórunn Elfa Bjarkadóttir sigraði í höggleik með 79 högg og vann jafnframt nándarverðlaun á 18. braut. Freyja Önundardóttir hreppti sigur í punktakeppni eftir harða baráttu, en hún spilaði á 40 punktum, í 2. sæti var Margrét Erlingsdóttir og 3. sæti Inga Nína Marrhíasdóttir. Þökkum Taramar fyrir stuðninginn við vormótið. Sigurvegarnir frá vinstri Elísabet Benónýsdóttir, Bryndís Arngrímsdóttir og Signý Marta Böðvarsdóttir Ferðagleði til Barcelona Þórunn Elfa Bjarkadóttir Freyja Önundardóttir
RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==