Í júlí var svo boðið upp á sérstakt 9. holu nýliða- og háforgjafarmót þar sem áherslan er á fræðslu um golfreglurnar og andrúmsloftið er afslappað. Þetta er þriðja sumarið sem mótið er haldið og á hverju ári fjölgum við plássum og alltaf er uppselt í mótið. Veðrið bjart og skorið gott. Sigríður Nanna Jónsdóttir fór með sigur af hólmi með 25 punkta en við þökkum öllum þátttakendum fyrir, margar að spila sitt fyrsta mót. Ljóst er að Nýliða- og háforgjafarmót hefur fest sig í sessi innan kvennastarfs GR. Kvenréttindadagur - hola í höggi Að kvöldi 19. júní var haldið 9 holu greensome-mót á Landinu á Korpu í tilefni kvenréttindadagsins. Mótið var létt og skemmtilegt. Um 80 konur tóku þátt, léttar veitingar og lukkuhjól vöktu lukku. Lið Kolbrúnar Birgisdóttur og Ólafar unnu mótið með 24 punktum. Ólöf Hjartardóttir stal senunni þegar hún fór holu í höggi á 22. braut. Til hamingju! Nýliðakraftur Vinningshafar í Nýliða- og háforgjafamótinu. Frá vinstri Nancy Lin Jóhannsdóttir, Sigríður Nanna Jónsdóttir og Guðrún Sverrisdóttir. 54 I KYLFINGUR I
RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==