I KYLFINGUR I 55 Sumarmótaröð 2025 Sumarmótaröð GR kvenna ár árviss viðburður og hófst í ár þann 16. júní og spilaðar 6 umferðir. Mótaröðin var í samstarfi við 66°Norður. Í teiggjöf var glæsileg teiggjöf frá 66°Norður sem við vorum ákaflega ánægðar með. Vinningshafinn var sú sem er með flesta samanlagða punkta frá 3 bestu hringjunum, vikulega voru einnig veitt nándarverðlaun og dregið úr skiluðum skorkortum. Bjarndís Jónsdóttir - 120 punktar Áslaug Eggertsdóttir - 119 punktar Anna Rós Ívarsdóttir - 117 punktar Vinninghafar í sumarmótaröðinni. Frá vinstri Áslaug Eggertsdóttir, Bjarndís Jónsdóttir og á myndinni er Hafdís Hansdóttir sem tók á móti verðlaunum fyrir Önnu Rós Ívarsdóttir Haustmót og lokahóf Frá vinstri: Sigríður Rafnar Pétursdóttir, Guðrún Másdóttir, Ásta Óskarsdóttir og Ingveldur B. Jóhannesdóttir. Við óskum ykkur innilega til hamingju. Hægt var að velja um bláa og rauða derhúfu í teiggjöf, hér eru flottar GR konur með rauðu húfurnar. Haustmót GR kvenna var haldið 13. september og í framhaldinu lokahóf kvennastarfsins. Grafarholtsvöllurinn blasti við í haustsólinni og dagurinn hófst á morgunverðarhlaðborði áður en ræst var út. Skemmtikrafturinn Ási Guðni sá um að úthluta skorkortaverðlaunum með bingói og hélt hann svo uppi fjöri á eftir veitingar. Ásta Óskarsdóttir varð Sumarmeistari í höggleik með 81 högg og fékk hún að launum 75.000 kr gjafabréf sem gildir upp í GR konuferð sem farin verður með Icelandair Vita haustið 2026. Punktakeppnina sigraði Guðrún Másdóttir 40 punkta og fékk hún einnig 75.000 k gjafabréf með Vita Icelandair. Ingveldur B. Jóhannesdóttir var í 2. sæti og Sigríður Rafnar Pétursdóttir var í 3. sæti. Fjöldi nándarverðlauna og skemmtilegra aukavinninga var veittur. Þökkum Vita Icelandair fyrir stuðninginn. Samstaða og þakklæti Á árinu naut kvennastarf GR dyggs stuðnings fjölmargra fyrirtækja, meðal þeirra Golfa.is, Taramar, 66° Norður, Icelandair VITA, Hvammsvík, Optical Studio, Hótel Örk og fjölda annarra sem gáfu gjafir og verðlaun. Kvennanefndin þakkar öllum styrktaraðilum og þátttakendum, án þeirra væri dagskráin ekki sú sama.
RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==