60 I KYLFINGUR I Sigríður Birna Magnúsdóttir sigraði Benz-holukeppni GR fyrst kvenna – fór holu í höggi í úrslitaleiknum! Sigríður Birna tryggði sér sigur í Mercedes-Benz bikarnum – fór holu í höggi í úrslitaleiknum Mercedes-Benz bikarinn, árleg holukeppni Golfklúbbs Reykjavíkur, lauk á dögunum eftir að hafa verið í gangi í allt sumar. Mótið, sem fyrst var haldið sumarið 2017, er opið bæði konum og körlum 19 ára og eldri og dregið er um mótherja í fyrstu umferð eftir skráningu í gegnum Golfbox. Keppnin fer fram sem holukeppni með forgjöf, þar sem mismunur á leikforgjöf keppenda raðast á 18 holur samkvæmt erfiðleikastuðli hverrar brautar. Þannig fær hver kylfingur sína forgjöf samkvæmt opinberri forgjafartöflu. Í ár hófu 83 kylfingar keppni í júní, þar af 11 konur. Jafnt hlutfall kynja var í 8 manna úrslitum, fjórir karlar og fjórar konur, og í fyrsta sinn í sögu mótsins voru það tvær konur sem mættust í úrslitaleik. Úrslitaleikurinn fór fram á Áin-Landið þar sem Sigríður Birna Magnúsdóttir og Guðrún Íris Úlfarsdóttir mættust. Sigríður náði glæsilegu afreki þegar hún fór holu í höggi á fjórðu holu og tryggði sér að lokum sigurinn gegn Guðrúnu. Að sögn Sigríðar var keppnin bæði krefjandi og skemmtileg. Hún segist hafa ákveðið að taka þátt eftir að hafa séð auglýsingu á síðu kvennastarfs GR í júní og hvetur fleiri konur til að slá til á næsta ári: „Þetta var frábær upplifun sem ég sé alls ekki eftir,“ sagði hún. Mercedes-Benz bikarinn heldur áfram að styrkja stöðu sína – þar sem kylfingar af ólíkum getustigum fá tækifæri til að etja kappi á jafningjagrundvelli.
RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==