Hjörtur Þorgilsson ÞANNIG VAR NÚ ÞAÐ! Hvenær varðstu félagi í GR? 2004. Af hverju varð golf fyrir valinu? Það var eitt vorið um aldamótin að ég var í veiðferð með góðum vini mínum Jóni Karli Ólafssyni í Stóru Laxá í Hreppum. Það sumarið gekk áin reyndar undir heitinu Stóra Laxá í kreppu, þar sem lítið sem ekkert var um veiði. Við fórum úr veiðihúsinu fyrsta morguninn með það verkefni að ég lærði að kasta flugu almennilega. Það verkefni kláraðist fljótt og örugglega, þannig að Jón Karl sagði að næsta mál á dagskrá væri að kenna mér að sveifla golfkylfu. Við fórum því á golfvöllinn á Flúðum og tókust á við það verkefni. Þarna vaknaði áhuginn, sem varð til þess að ég fór á fullt í sportið, eftir fyrstu lagfæringu á illa förnu hné. Hver er forgjöfin í dag? Forgjöfin er 18,4, en hef lægst skriðið undir 15. Held ég eigi eitthvað inni, en spurning hvort það láti nokkuð á sér kræla fyrr en ég flyt mig á fremri teiga, ártalið segir að það gæti farið að styttast í það. Korpan eða Grafarholt? Mér hefur alltaf líkað vel við Korpuna og eftir að lykkjurnar urðu 3 þá býður hún upp á skemmtlega fjölbreytni. Korpan hentaði mér líka betur á meðan ég var að skrölta í sportinu á tveimur ónýtum hnjám. Eftir að hafa fengið tvo nýja hnjáliði er ég farinn að njóta þess að ganga brekkurnar í Holtinu og því held ég að ég verði að setja það ofar af tveimur góðum, skemmtilegum, en ólíkum völlum. Hvernig hefur þér gengið, einhverjir eftirminnilegir sigrar? Það sem er svo skemmtilegt við þessa íþrótt er að þú ert alltaf keppa við sjálfan þig, þar sem stöðugt skiptast á skin og skúrir. Ég byrjaði ekki að spila golf fyrr en upp úr fertugu og tel að ég hafi gert hárrétt með því að fara ekki almennilega af stað fyrr en ég hafði farið í kennslu. Ég var staðráðin í að ná tökum á sportinu, svo fyrstu árin var ég mjög duglegur við að fara út jafnvel eldsnemma á morgnana fyrir vinnu, rölta 9 holur einsamall með 1-2 bolta og svo fara aftur seint á kvöldin og taka aðrar 9 á sama hátt. Ég var þó alltaf að glíma við það að hnén voru léleg, þannig að ég held að stærstu sigrarnir hafi verið að getað tileinkað mér og haft úthald í að stunda golfið í þessu standi. Eftirminnileg atvik eða skemmtilegar sögur? Mér finnst alltaf ljúfsárt að rifja upp þegar ég tók þátt í mínu fyrsta meistaramóti í 3ja flokki. Ég hafði þá nýlega spilað minn besta golfhring á Holtinu, lék á 85 höggum sem skilaði mér þá 42 punktum. Ég mætti því með kassann úti og ætlaði aldeilis að stefna á að vera í baráttu um toppsæti. Ég hóf leik á Sjónum á Korpunni og spilaði fyrstu par 5 á 8 höggum. Önnur par 5 holan kallaði líka á 8 högg og þá var komið að þriðju brautinni, par 3, við ánna. Þar fór fyrsti boltinn út í á, annar boltinn fór sömu leið og þegar upp var staðið taldi holan 9 högg, þannig að ég var kominn 12 högg yfir par og þrír hringir eftir af mótinu. Ég verð að viðurkenna að ég hefði þegið niðurskurð eftir 2 hringi. Hefurðu farið holu í höggi? Stutta svarið er nei, en komst næst því á 2. holu á Holtinu í nokkrum hliðarvindi. Ég átti gott högg sem lenti hægra megin við holu á flöt og sveigði svo til vinstri með vindinum í átt að holu, rann í stöngina og stöðvaðist innan við 10cm frá holu. Menn á 3ja teig sem urðu vitni að þessu sögðu klárt að 62 I KYLFINGUR I
RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==