KYLFINGUR 2025

vindurinn hefði orsakað það að stöngin hefði sveiflast til og skallað boltann frá holu. Sel það ekki dýrar en ég keypti það. Hver er sá besti sem þú hefur spilað með? Átti einu sinni því láni að fagna að spila hring með Birgi Leifi á Oddinum, þar sem hollið spilaði á gulum teigum. Það var upplifun að sjá hann spila völlinn, ekki síst þegar hann var að reyna við flatirnar í upphafsöggum á par 4 holum. Besti golfvöllur sem þú hefur leikið? Við eigum mikinn fjölda af góðum golfvöllum hér á Íslandi, sem gaman er að spila og ég verð að sjálfsögðu að nefna heimavellina okkar sem eru flottir. Við hjónin reynum svo að spila bæði Katlavöll á Húsavík og Jaðarsvöll á Akureyri á hverju sumri, sem eru skemmtilegir þegar þeir eru í góðu standi. Við fórum svo í fyrsta skiptið á Silfurnesvöll á Höfn í sumar, sem kom okkur verulega á óvart. Ég hef líka fengið að njóta þess að spila marga góða og skemmtilega velli erlendis. Eftirminnilegir vellir eru Alcaidesa og LaFinca á Spáni, The Grove í Bretlandi, en ég verð að segja að upp úr stendur að hafa spilað á Turnberry-völlunum í Skotlandi og þá sérstaklega Ailsa Course sem sem er án efa besti völlur sem ég hef spilað. Eitthvað hjá GR sem betur mætti fara? Það sem svíður oft eru erfiðleikarnir við að ná í rástíma, en þau skref sem verið er að stíga til að stemma stigum við óeðlilegum bókunum eru klárlega til bóta. Mér finnst einnig að gera megi átak í að efla félagsandann í klúbbnum og hvetja félaga til að ganga vel um og bera virðingu fyrir hver öðrum og þeirri aðstöðu sem okkur er boðið uppá. Eitthvað að lokum? Ég varð löggiltur „H“eldri borgari í sumar, svo það styttist í ég ljúki störfum. Þegar þau tímamót nálgast þá finnst mér það hafa verið mikil lukka að hafa ákveðið að byrja að stunda golf, því það mun án efa stytta manni stundirnar í stóra fríinu. I KYLFINGUR I 63 Á Íslandsmótinu í golfi 2025 var keppt í annað skiptið um Guðfinnubikarinn, sem er veittur þeim áhugakylfingi sem leikur á lægsta skori kvennaflokksins á Íslandsmótinu í golfi. Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GKG, lék á besta skori áhugakylfings í kvennaflokki og er önnur til að hljóta verðlaunin. Perla endaði í þriðja sæti mótsins á níu höggum yfir pari í heildina. Þrátt fyrir að vera ekki orðin nítján ára fyrr en í september á þessu ári var þetta áttunda Íslandsmót Perlu. Hún varð Íslandsmeistari í fyrsta skiptið árið 2022, þá einungis fimmtán ára. Klúbbfélagi Perlu, Hulda Clara Gestsdóttir, vann bæði Guðfinnubikarinn og Íslandsmótið árið 2024. Björgvinsskálin Skálin er veitt til heiðurs Björgvini Þorsteinssyni en árið 2021 voru liðin 50 ár frá því að Björgvin varð í fyrsta sinn Íslandsmeistari í golfi 1971. Björgvin varð síðar sexfaldur Íslandsmeistari og er næst sigursælasti kylfingur Íslandsmótsins í karlaflokki. Verðlaunagripinn hafði Björgvin Þorsteinsson ánafnað GSÍ en um er að ræða verðlaun sem Björgvin hlaut fyrir fyrsta Íslandsmeistaratitil sinn árið 1971. Þetta er í fyrsta skipti sem systkini vinna bæði Björgvinsskálina og Guðfinnubikarinn, en Dagbjartur Sigurbrandsson vann Björgvinsskálina fyrir lægsta skor áhugakylfings í karlaflokki. Guðfinnubikarinn Bikarinn er veittur til heiðurs Guðfinnu Sigurþórsdóttur en hún er fyrsta konan sem fagnaði Íslandsmeistaratitlinum í golfi í kvennaflokki árið 1967. Karen Sævarsdóttir, dóttir Guðfinnu, afhenti bikarinn í fyrsta skipti á verðlaunaafhendingu Íslandsmótsins 2024 á Hólmsvelli í Leiru. Guðfinna varð þrívegis Íslandsmeistari í golfi, 1967, 1968 og 1971. Hún var í hópi þeirra sem stóðu að stofnun Golfklúbbs Suðurnesja árið 1964. Verðlaunagripurinn er úr safni Guðfinnu en dóttir hennar, Karen Sævarsdóttir, er sigursælasti kylfingur allra tíma á Íslandsmótinu í golfi, þar sem hún sigraði átta sinnum í röð á árunum 1989-1996. Mæðgurnar, Guðfinna og Karen, eru því með ellefu titla samtals. Perla Sól vann Guðfinnubikarinn og Dagbjartur Björgvinsskálina á Íslandsmótinu í golfi 2025

RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==