I KYLFINGUR I 67 Guðmundur Daníelsson ÞANNIG VAR NÚ ÞAÐ! Hvenær varðstu félagi í GR? Gekk í klúbbinn 2005. Af hverju varð golf fyrir valinu? Golf var mjög hentugt þegar ég var mikið í vaktavinnu. Gat farið út að spila eftir oft langar og krefjandi vaktir og ekki háður ákveðinni stundaskrá við æfingar. Góð slökun eftir langa daga á sjúkrahúsi. Gaman að kynnast skemmtilegu fólki á vellinum og líka að kynnast sjálfum sér. Golfið er svo mikið spilað í höfðinu. Las bókina Playing the Great Game of Golf og hugmyndafræðin í þeirri bók kveikti svolítið í mér að halda áfram í íþróttinni. Hver er forgjöfin í dag? 14.2 Korpan eða Grafarholt? Hrifinn af báðum völlunum en spila Korpuna mun oftar. Líklega hefur það með að gera að ég spila mjög oft bara níu holur. Svo ég verð að segja Korpan. Hvernig hefur þér gengið, einhverjir eftirminnilegir sigrar? Hef lítið tekið þátt í mótum og sjaldan unnið. Einn eftirminnilegur sigur var mót skurðdeildar Uddevalla sjúkrahússins í Svíþjóð. Það var íslenskt veður fyrir allan peninginn, hávaða rok og rigning svo flestir hættu eftir níu holur en ég hélt út 18 holur og kom inn á besta skorinu. Eftirminnileg atvik eða skemmtilegar sögur? Einn eftirminnilegasti hringur sem ég hef spilað var á Waialae Country Club í Honolulu í janúar árið 2000. Síðasti dagurinn á Sony open á PGA túrnum var spilaður deginum áður. Þetta var mjög spennandi mót sem Paul Azinger vann. Ég hafði fylgt Jesper Parnevik eftir á mótinu og hann lenti að lokum í þriðja sæti. Kunningi minn Jim Penoff lýtalæknir á Straub Clinic and Hospital var meðlimur á vellinum og bauð mér að spila með sér daginn eftir mótið. Flöggin voru enn á sama stað og deginum áður og andi mótsins sveif yfir vötnunum. Ég hafði þá nýlega byrjað að spila golf fyrir alvöru. Þessi völlur, eins og svo margir í Bandaríkjunum, er einungis ætlaður meðlimum. Þar var reglan sú að ef þú fórst holu í höggi þurftir þú að bjóða öllum meðlimum í kvöldverð svo allir voru með “hole in one” tryggingu. Hefurðu farið holu í höggi? Ekki farið holu í höggi en velti því einstaka sinnum fyrir mér á teig hvort nú sé komið að því. Hver er sá besti sem þú hefur spilað með? Það er án efa Guðmundur Ágúst. Spilaði hring með honum í Grindavík fyrir nokkrum árum. Frábær leikmaður! Þekki foreldra hans ágætlega, ætli þau séu ekki þau næstbestu sem ég hef spilað með. Besti golfvöllur sem þú hefur leikið? Verð líklega að halda mig við Hawaii, Mauna Lani Bay völlinn á Big Island. Kannski spilar góða veðrið inn í upplifun mína á hvað er besti völlurinn. Margir mjög skemmtilegir vellir á Íslandi, Húsavík í nokkru uppáhaldi. Eitthvað hjá GR sem betur mætti fara? Held að GR sem klúbbur ætti að hafa frumkvæði að fá nýjan 18 holu völl í borgarlandinu. Það eru margir á biðlista í Reykjavík eftir að komast í klúbb og opnum svæðum á Reykjavíkursvæðinu fer fækkandi nú þegar byggðin er að þéttast. Nú er tækifærið til að bæta við fallegum velli á vegum GR. Svo er spurning hvort ekki sé rétt að bjóða einu sinni á ári „ofurgolfmót“ þar sem spilaður yrði 36 holu hringur á Korpunni og vellinum í Mosfellsbæ. Yrði þá gengið yfir brúnna yfir í Mosfellsbæ eftir tvær fyrstu holurnar á sjónum á Korpunni. Mosfellsvöllur svo spilaður og síðan myndu síðustu holurnar vera sjórinn og áin. Myndi skapa skemmtilega tengingu milli félaga í þessum tveimur nágrannaklúbbum. Þetta væri í svipað og bakgarðshlaupið nema fyrir okkur golfara. Eitthvað að lokum? Eftirminnilegasti hringur í ár er án efa með ritstjóra GR-kylfingur nú í haust. Dóri spilaði eins og atvinnumaður, hef aldrei spilað með manni sem gerir „back to back birdies“ á fyrstu tveim holunum á Korpunni. Góð spilamennska hjá meðspilurum bætir iðulega golfið hjá mér.
RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==