68 I KYLFINGUR I Hversu lengi hefur þú verið í GR? Ég hef verið í GR síðan ég var 8 ára og er því búin að vera núna í 10 ár. Hvað heillaði þig við golfið og hvers vegna varð golf fyrir valinu? Ástæðan fyrir því að ég byrjaði í golfi var sú að foreldrar mínir fundu enga pössun fyrir mig, hahaha, þannig að ég endaði bara með þeim á golfvellinum. Það var því ekki eitthvað sem ég valdi beint í upphafi, en eftir því sem ég var meira á vellinum fór ég að finna hvað golf er skemmtilega krefjandi íþrótt. Mér fannst alltaf gaman að reyna að bæta mig og sjá litlar framfarir. Þegar ég fékk fyrsta fuglinn minn kviknaði alveg sérstök tilfinning – þá langaði mig bara að verða betri og gera þetta aftur og aftur. Það ýtti mér áfram að æfa mig meira og þá fór golfið smátt og smátt að verða að íþrótt sem ég er til í að leggja mig alla fram við. Hver er forgjöfin þín í dag? Forgjöfin mín er 0,5. Hvernig myndir þú lýsa sumrinu þínu í golfi? Hvað stóð upp úr? Sumarið mitt er vanalega þéttbókað þar sem ég hef keppt bæði í unglinga- og GSí-mótaröðinni. Ég byrjaði sumarið vel og spilaði stöðugt golf, en um mitt sumar kom lítill kafli sem var nokkuð óstöðugur – þó endaði ég sumarið með stæl. Það sem stóð mest upp úr í sumar var dræverinn; ég var mjög stöðug með hann og var oftast á braut. Í hvaða móti gekk þér best í sumar og hvað telur þú að hafi skilað þeim árangri? Úff, það er erfitt að velja, en það hlýtur að vera á milli Íslandsmótsins í holukeppni U18 eða meistaramótsins. Í þessum mótum var gott jafnvægi, ég var mjög stöðug og einbeitingin var upp á 100. Hvernig undirbýrð þú þig fyrir golfmót? Vikuna fyrir mót skoða ég hvaða högg eru best til að halda stöðugleika og koma mér í bestu stöðurnar og færi, og legg svo áherslu á að æfa þau högg í vikunni. Mér finnst líka mjög gott að „núllstilla“ pútterinn, taka nokkrar viðhaldsæfingar og skoða stöðuna. Hverjar voru helstu bætingar hjá þér í sumar – andlega, tæknilega eða taktískt? Ég hef bætt mig gríðarlega í andlegu hliðinni í golfi. Ég var einu sinni mjög fljót að missa hausinn og verða pirruð, en vann í því í fyrra og í sumar og hef bætt mig mikið þar. Hvaða atvik eða stund úr sumrinu var eftirminnilegust? Þegar ég fór holu í höggi á Hvaleyrarbikarnum. Svo, fjórum holum seinna, fékk ég annan örn – þetta var alveg æðislegt ég var allt í einu komin í -4. Hefur þú farið holu í höggi? Já, eins og ég sagði. Þetta var 1. júní og á 2. holu á Hvaleyrarvelli. Holunni hafði verið breytt í par 3 og var því 120 metrar, það var svakalegur vindur og ég tók þess vegna kylfu í samræmi við það og það var þá 8 sem varð fyrir valinu. Hver hefur veitt þér mesta hvatningu í golfi í gegnum árin? Það hlýtur að vera mamma og pabbi. Þau eru alltaf jafn spennt að fylgjast með, sama hvernig gengur, og eru alltaf til staðar þegar eitthvað kemur upp á. Hvað finnst þér einkenna leikstílinn þinn og stærstu styrkleikana? Ég myndi segja að ég sé nokkuð árásargjörn, en ef aðstæður leyfa það ekki þá spila ég „safe“. Helstu styrkleikar mínir eru púttin – þau hafa alltaf verið mjög stöðug og góð. Ég er einnig mjög stöðug frá teigum. Hver er besti hringur sem þú hefur leikið, og hvar var það? Í keppni er besta skorið mitt parið, en það hefur verið á nokkrum völlum. Besti hringurinn minn er samt í Grafarholti, þar sem ég spilaði á 69 höggum. Í hvaða háskóla ertu að fara og hvað ætlar þú að læra? Ég er að fara í University of Texas at Tyler. Hann er staðsettur rétt fyrir utan við Dallas í Texas. Planið er að læra markaðsfræði, nema að lífið leiði mig í aðra átt. Hverjar eru væntingar þínar til háskólagolfs og lífsins ytra? Væntingar mínar eru að ná lengra í golfi og fá hjálp sem er ekki til staðar á Íslandi, og að geta spilað allan ársins hring. Ég er einnig spennt að kynnast menningunni í Bandaríkjunum, kynnast nýju fólki og hafa rosa gaman. Hver eru markmið og draumaplönin þín í golfi? Draumurinn minn í golfi er að sjálfsögðu að verða atvinnumaður og komast inn á LPGA. Núna er ég að vinna að nokkrum markmiðum, þar á meðal að verða stöðugri með fleygjárnum, auka sveifluhraða og verða því aðeins högglengri. Þóra Sigríður Sveinsdóttir UNG OG EFNILEG
RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==