KYLFINGUR 2025

I KYLFINGUR I 71 Hversu lengi hefur þú verið í GR? Ég byrjaði á barnanámskeiði ca. 7 ára og hef verið í GR síðan. Hvað heillaði þig við golfið og hvers vegna varð golf fyrir valinu? Mér hefur alltaf fundist mjög gaman í golfi og skemmtilegt að æfa íþróttina. Ég held samt að það hafi haft mikil áhrif að eiginlega öll fjölskyldan mín stundar íþróttina. Hver er forgjöfin þín í dag? Í kringum 2. Hvernig myndir þú lýsa sumrinu þínu í golfi? Hvað stóð upp úr? Þetta var að mörgu leyti mjög gott sumar – en eins og allir kylfingar þekkja er golf upp og niður! Það sem stóð mest upp úr hjá mér var European Young Masters mótið í Frakklandi en það var bæði mín fyrsta keppnisferð erlendis og fyrsta verkefnið mitt með landsliðinu. Í hvaða móti gekk þér best í sumar, og hvað telur þú að hafi skilað þeim árangri? Besti árangurinn í sumar finnst mér hafa verið Íslandsmót kvenna í holukeppni þar sem ég endaði í fjórða sæti. Svo fylgir klúbbmeistaratitillinn auðvitað fast á eftir. Æfing skilar árangri. Hvernig undirbýrð þú þig fyrir golfmót? Mér finnst eiginlega mikilvægast að æfa ekki of mikið daginn fyrir mót. Alveg sama þó að mót sé tveir dagar eða fjórir, maður verður á endanum þreyttur og þú ert bara að hraða því ferli ef þú æfir þig of mikið daginn fyrir. Reyna að borða hollan mat og muna eftir kolvetnum. Svefn skiptir líka gríðarlega miklu máli. Að vera andlega tilbúin í mót er einnig mjög mikilvægt. Hverjar voru helstu bætingar hjá þér í sumar – andlega, tæknilega eða taktískt? Mér finnst ég vera miklu sterkari andlega eftir sumarið. Ég lærði mjög mikið og gerði fullt af mistökum, sem er náttúrulega bara gott. Til þess að verða góð/ur í þessari íþrótt er reynslan mjög mikilvæg og hvað er reynsla ef ekki mistökin þín? Hvaða atvik eða stund úr sumrinu var eftirminnilegust? Það fyrsta sem kemur í hugann er örninn sem ég fékk á 13. holu á Grafarholtsvelli í meistaramótinu í sumar. En hringurinn á Íslandsmótinu í holukeppni, þegar ég var á móti Elísabetu Sunnu, var líka mjög eftirminnilegur. Ég held ég hafi bara aldrei spilað jafn vel. Það gekk allt upp, ég var ábyggilega í kringum 4 undir pari eða eitthvað. Hefur þú farið holu í höggi? Nei, ekki ennþá. Hvernig var tilfinningin þegar þú fékkst fregnirnar um að þú hefðir verið valin í unglingalandslið Íslands? Það var búið að vera markmiðið mitt í marga mánuði að komast í landsliðið, svo það var auðvitað frábær tilfinning. Ég er rosalega spennt fyrir vetrinum og komandi sumri. Hvað telur þú að hafi helst skilað þér í landsliðið? Að hafa gaman af því að æfa og stunda íþróttina. Og bara þrautseigja, að geta haldið áfram þegar ekki allt gengur upp. Hvernig er stemningin og andrúmsloftið í kringum landsliðshópinn? Stemningin er mjög góð í hópnum og ég hlakka mikið til æfingaferðarinnar og móta í vor og sumar. Hver hefur veitt þér mesta hvatningu í golfi í gegnum árin? Foreldrar mínir, amma og afi hafa alltaf veitt mér mikla hvatningu í golfinu og fjölskyldan öll stutt við bakið á mér. Svo eru auðvitað þjálfarar sem hafa hjálpað mér virkilega mikið með allt sem tengist íþróttinni og ég lít mikið upp til þeirra. Hver er besti hringur sem þú hefur leikið, og hvar var það? Ég held ég hafi aldrei spilað skráðan hring undir pari, en ég hef nokkrum sinnum spilað á parinu, til dæmis á Flúðum og á báðum völlum GR. Hver eru markmið þín í golfi næstu árin? Mig langar mikið að fara í háskólagolf í Bandaríkjunum. Önnur markmið eru til dæmis að verða valin á EM stúlkna á næsta ári og að vinna eitthvert mót á unglingamótaröðinni. Ásdís Rafnar Steingrímsdóttir UNG OG EFNILEG

RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==