KYLFINGUR 2025

Kalla Jó - mótaröðin Í sumar var leikin golfmótaröð fyrir kylfinga GR sem eru 70 ára á árinu eða eldri. Leikin voru sex mót og fóru þau öll fram á 9 holu leggjum Korpúlfsstaðavallar. Fyrsta mót sumarsins var leikið 23. maí og lokamótið fór fram 12. september. Mótaröðin gekk undir nafninu Kalla Jó mótaröðin til heiðurs Karli Jóhannssyni sem kom þessari mótaröð á laggirnir og stjórnaði árum saman. Hann hætti að sjá um mótaröðina þegar hann varð níræður en mætir enn á hvert einasta mót og hefur ennþá mikinn áhuga á þessari golfmótaröð. Kalli er orðinn 91 árs. Að loknu hverju móti fór fram verðlaunaafhending í golfskálanum á Korpu. Veitt voru verðlaun fyrir þrjú efstu sæti í punktakeppni karla og kvenna og auk þess besta skor án forgjafar. Þá voru að jafnaði veitt nándarverðlaun fyrir par 3 brautir, stundum fyrir lengsta teighögg og dregin voru út aukaverðlaun (dregið úr skorkortum) sem þeir keppendur sem voru viðstaddir verðlaunaafhendinga áttu kost á að vinna. Auk þess að veita verðlaun fyrir hvert mót þá var einnig keppt um stigameistara, en þar töldu 3 bestu skorin í mótum sumarsins hjá hverjum keppanda. Í lokamótinu urðu úrslit sem hér segir: Punktakeppni karla: Ásgrímur Guðmundsson 22 pkt Ágúst Ingi Jónsson 21 pkt Ásgeir S. Ingvason 19 pkt Punktakeppni kvenna: Magdalena M Kjartansdóttir 20 pkt Anna Sigurjónsdóttir 19 pkt Sonja Þorsteinsdóttir 19pkt Besta höggleiksskor átti Jens Guðfinnur Jensson sem lék á 37 höggum eða einu höggi yfir pari. Stigameistarakeppninni lauk með eftirfarandi úrslitum Punktahæstu konurnar voru: Marólína G. Erlendsdóttir 63 pkt Magdalena M. Kjartansdóttir 55 pkt Ingveldur B. Jóhannesdóttir 49 pkt Punktahæstu karlarnir voru: Sigurdór Stefánsson 60 pkt Haukur Magnússon 59 pkt Ásgeir S. Ingvason 56 pkt Bestu höggleiksskorin án forgjafar voru þessi: Hans Óskar Isebarn 114 högg Haukur Magnússon 115 högg Walter Hjartarson 115 högg Stórkylfingurinn Ómar Arason gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á 13. holunni í lokamóti mótaraðarinnar. Fékk hann að sjálfsögðu verðlaun fyrir að vera næstur holu. Sigurdór Stefánsson hlaut stigameistaratitil karla 2025. Marólína G. Erlendsdóttir stigameistari kvenna 2025. Besta skor án forgjafar, Hans Óskar Isebarn. 74 I KYLFINGUR I

RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==