I KYLFINGUR I 77 Opnunarmót Korpu fór fram 10. maí í fínasta veðri og greinilegt að golfsumarið er komið á fullt. Fjöldi kylfinga lagði leið sína á völlinn og var mikil og skemmtileg stemning allan daginn. Ræst var út frá 8:00-15:00 og tóku rúmlega 190 kylfingar þátt. Besta skor dagsins átti Andri Þór Björnsson, spilaði á 66 höggum. Það er alltaf sérstök tilfinning að hefja golfsumarið á Opnunarmótinu, hitta félaga og finna spennuna sem fylgir fyrsta mótinu. Við hvetjum alla til að nýta sumarið til að njóta útiverunnar, hreyfingarinnar og samverunnar sem golfíþróttin býður upp á. Korpan er opin og við hlökkum til að sjá ykkur á teig á næstu vikum. Úrslit í Opnunarmóti Korpu 2025 urðu þessi: Forgjöf 0-14 Þórður Jónsson 38 punktar (betri seinni 9) Guðmundur Arason 38 punktar Guðni Hafsteinsson 37 punktar (betri seinni 9) Forgjöf 14,1 og hærra Bjarni Steinn Eiríksson 42 punktar Gísli Sigurjón Brynjólfsson 37 punktar Rósa Stefánsdóttir 35 punktar (betri seinni 9) Besta skor: Andri Þór Björnsson 66 högg Nándarverðlaun: 3.braut: Brynjar Már 144 cm 6.braut: Ásgeir Ingvarsson 109 cm 9.braut: Ólafur H. Jóhannesson 151 cm 13.braut: Gunnar Freyr Þorsteinsson 87 cm 17.braut: Bogi Nils Bogason 113 cm Við þökkum keppendum öllum fyrir þátttökuna í dag og óskum vinningshöfum til hamingju með árangurinn. Opnun Korpu 2025
RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==