78 I KYLFINGUR I Opnunarmót Grafarholts fór fram 17. maí í frábæru veðri, þó vindurinn hafi aðeins látið vita af sér þá var sól og hátt í 20 stiga hiti. Golfsumarið byrjar vel með brakandi blíðu síðustu daga. Fjöldi kylfinga lagði leið sína á völlinn og var mikil og skemmtileg stemning allan daginn. Ræst var út frá 8:00-15:00 og tóku tæplega 180 kylfingar þátt. Besta skor dagsins átti Kjartan Sigurjón Kjartansson, spilaði á 76 höggum. Það er alltaf tilhlökkun og skemmtileg tilfinning að hefja golfsumarið á Opnunarmótum, hitta félaga og finna spennuna sem fylgir opnun fallegu vallanna okkar. Grafarholtið og Korpan eru formlega opin, tilbúin í slaginn með okkur og við hlökkum til að sjá ykkur á teig á næstu vikum. Við hvetjum alla félagsmenn okkar til að njóta útiverunnar, hreyfingarinnar og samverunnar sem golfíþróttin býður upp á – höfum gaman saman! Opnun Grafarholts 2025 Úrslit í Opnunarmóti Grafarholts 2025 urðu þessi: Forgjöf 0-14 Hjörtur Ingþórsson 38 punktar Kristján Daníelsson 37 punktar (betri síðustu 6) Sigurjón Árni Ólafsson 37 punktar Forgjöf 14,1 og hærra Jón Stefán Hallgrímsson 40 punktar (betri seinni 9) Gunnar Freyr Þorsteinsson 40 punktar Erlendur Snær Ársælsson 39 punktar Besta skor: Kjartan Sigurjón Kjartansson 76 högg Nándarverðlaun: 2. braut: Birkir Eyþórsson 530 cm 6. braut: Jón Kristbjörn Jónsson 283 cm 11. braut: Guðrún Ýr Birgisdóttir 313 cm 17. braut: Helga Friðriksdóttir 212 cm Við þökkum keppendum öllum fyrir þátttökuna í dag og óskum vinningshöfum til hamingju með árangurinn.
RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==