Það var mikil spenna bæði í meistaraflokki karla og kvenna. 72 holur dugðu ekki til þess að krýna klúbbmeistara og þurfti bráðabana í báðum flokkum. Haraldur Franklín Magnús fagnaði klúbbmeistaratitlinum í annað sinn og Ásdís Rafnar fagnaði sínum fyrsta klúbbmeistaratitli. Ásdís Rafnar og Þóra Sigríður öttu kappi við hvor aðra alla fjóra dagana og enduðu báðar á 305 höggum eftir 72 holur og þurfti því bráðabana til að skera úr um klúbbmeistara, þær spiluðu 18. holu Korpúlfsstaðavallar ekki einu sinni heldur tvisvar sinnum en í seinna skiptið hafði Ásdís betur og er klúbbmeistari GR í kvennaflokki. Í öðru sæti varð Þóra Sigríður Sveinsdóttir (eftir tap í bráðabana) á 305 höggum og í þriðja varð Ragnhildur Sigurðardóttir á 315 höggum. Í karlaflokki voru nokkuð fleiri sem kepptu um titilinn en að loknum 72 holum enduðu Haraldur Franklín og Sigurður Blumenstein báðir á 279 höggum eða 7 höggum undir pari. Það þurfti því einnig bráðabana til að skera úr um hver yrði klúbbmeistari í karlaflokki. Þeir spiluðu 18. holu Korpúlfsstaðavallar hvorki meira né minna en þrisvar sinnum og í þriðja skiptið hafði Haraldur Franklín betur og er klúbbmeistari GR í karlaflokki. Í öðru sæti varð Sigurður Bjarki Blumenstein á 279 höggum (eftir tap í bráðabana) og í þriðja sæti varð Elvar Már Kristinsson á 284 höggum. Sigurður Bjarki Blumeinstein átti einstakan lokahring á mótinu upp á 64 högg eða 8 högg undir pari vallarins og bogey (eða hærra skor) frían hring. Fullt hús var á Lokahófi sem haldið var á Korpunni þar sem 500 kallinn, Jón Sig, sá um að keyra upp gleðina sem Dj Búi sá svo um að halda á lofti að verðlaunaafhendingu lokinni og fram eftir kvöldi. Öll úrslit úr mótinu má finna í mótaskrá á Golfbox en helstu úrslit urðu eftirfarandi: Meistaramót 2025 KLÚBBMEISTARAR GR 2025. Ásdís Rafnar og Haraldur Fra 84 I KYLFINGUR I
RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==