Tómas Eiríksson Hjaltested, GR og Heiðrún Anna Hlynsdóttir, GOS eru stigameistarar 2025 á GSÍ mótaröðinni. Þetta er í fyrsta skiptið sem þau hreppa stigameistaratitilinn, en þau léku bæði frábærlega á tímabilinu. Tómas lék í öllum sex mótum mótaraðarinnar og endaði með 2.595 stig. Einstakur stöðugleiki og góð spilamennska einkenndi sumarið. Tómas sem hafði verið í efstu fimm sætunum í öllum mótum fram að Íslandsmóti. Hann hafnaði í þrisvar í öðru sæti, í Vormóti GM, Vormóti GÞ og í Korpubikarnum. Hann varð þriðji í Íslandsmótinu í holukeppni og fimmti í Hvaleyrarbikarnum. Tómas endaði í 22. sæti Íslandsmótsins í golfi, en hafði svo gott sem tryggt sér titilinn fyrir mót. Golfklúbbur Reykjavíkur er Íslandsmeistari klúbba karla 50 ára og eldri eftir spennandi keppni á Hólmsvelli í Leiru í lok ágúst. GR vann Setberg í úrslitaleik 3/2. Í úrslitaviðureigninni, sem var mjög spennandi, tapaði GR í fjórmenningsleiknum en vann þrjá af fjórum í tvímenningi þar sem tveir leikir fóru á 19. holu Liðin áttust líka við í 2. umferð mótsins og þá vann Setberg örugglega 3,51,5. Í 3. sæti varð Golfklúbburinn Esja sem vann norðanmenn úr Golfklúbbi Akureyrar í lokaumferðinni. Heimamenn í Golfklúbbi Suðurnesja urðu í 5. sæti eftir sigur á Leynismönnum frá Akranesi. Golfklúbburinn Keilir sem hefur oftar verið í toppbaráttunni og oft verið meistari á undanförnum árum mátti nú þola það hlutskipti að enda í neðsta sæti og dugði ekki sigur í lokaumferðinni gegn GKG. Keilismenn leika því í 2. deild á næsta ári. Sigurlið GR. Aftari röð fv.: Guðmundur Arason, Jón Snorri Halldórsson, Jón Karlsson og Einar Long. Fremri röð fv.: Böðvar Bergsson, Jón Kristbjörn Jónsson, Magnús Bjarnason og Hannes Eyvindsson. GR bestur klúbba í Leirunni Tómas Eiríksson Hjaltested stigameistari 2025 I KYLFINGUR I 91
RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==