Reynir Vignir ÞANNIG VAR NÚ ÞAÐ! Hvenær varðstu félagi í GR? Vorið 1967. Af hverju varð golf fyrir valinu? Pabbi minn lék golf í GR og ég kynntist íþróttinni í gegnum hann. Við vorum líka nokkrir vinir sem áttum heima nærri Ármannssvæðinu við Sigtún, höfðum aðgang að golfkylfum og byrjuðum að æfa okkur þar. Gerðum nokkrar golfholur svo lítið bar á, fengum leiðsögn og höfðum gaman af. Eftir að ég fékk golfsett í fermingargjöf var ekki aftur snúið. Ég var skráður í GR sama vor, hef leikið golf á hverju ári síðan og tekið þátt í mótum (mismörgum) í 59 ár. Fáir unglingar voru í golfinu þegar ég byrjaði, flestir þeirra áttu feður sem voru í golfi og oft lékum við pabbi við aðra feðga á fyrstu árum mínum í golfinu. Ungum iðkendum fjölgaði svo upp úr 1970. Á þessum árum þekktust nær allir kylfingar í GR með nafni, áttu skáp fyrir settið í skálanum og var treyst fyrir lykli að golfskálanum. Gátu mætt til leiks, sett bolta í rennuna og leikið þegar þeim hentaði. Hver er forgjöfin í dag? 16,8 í lok sumars 2025. Korpan eða Grafarholt? Grafarholtið var svo lengi eini völlurinn að hann er enn í meira uppáhaldi og breytingar sem gerðar hafa verið á honum hafa flestar tekist vel. Hef hins vegar mjög gaman af því leika á Korpunni og leik líklega heldur fleiri hringi þar núna. Oft einfalt og gott að skjótast níu holur á Korpunni til að svala golfþörf dagsins. Hvernig hefur þér gengið, einhverjir eftirminnilegir sigrar? Ég náði nokkuð fljótt þokkalegum tökum á golfinu og hef oftast verið sáttur með leik minn í lok sumars. Forgjöfin fór lægst í 8,2 í gamla forgjafakerfinu þar sem oft voru miklar sveiflur og þó hún hafi sigið upp með aldrinum finnst mér alltaf gaman í golfi og fagna hverju sumri. Fyrsti stóri sigurinn kom 1972 þegar ég vann 3. flokk í meistaramóti GR. Hörkukeppni sem lauk á laugardegi og á þriðjudeginum á eftir fór ég í brjósklosaðgerð og lék ekki meira golf það sumarið. Ég man líka vel eftir sigri í opnu móti í 1. flokki á Grafarholtsvelli þar sem úrslitin réðust á 18. flöt. Held samt mest upp á það að vera einn örfárra sem náðu tvisvar sinnum að vinna holukeppni sem hét Olíubikarinn og var ein aðalkeppnin hjá GR í áratugi. Svo hafa nokkur verðlaun og sigrar dottið inn í keppnum70+ á síðustu árum og því fylgir líka gleði. Eftirminnileg atvik eða skemmtilegar sögur? Ég tók einu sinni þátt í keppni með endurskoðendum frá Evrópu á móti kollegum okkar frá USA á velli þar. Á lokadeginum þegar allt var undir í einmenningsholukeppni kom slík rigning að völlurinn breyttist í vatnagarð á örfáum mínútum. Þegar krókdílarnir voru komnir upp úr skurðum og vötnum við völlinn og farnir að kíkja á golfbílana var allt gefið í botn, við forðuðum okkur inn í klúbbhúsið og keppnin var blásin af. Sem betur fer var lið Evrópu með forystu eftir fyrstu tvo dagana og bikarinn sem keppt var um fór með okkur yfir hafið. Það var líka mjög eftirminnilegt að fylgjast með Ryder Cup keppni við París árið 2017, sjá í nálægð hvernig bestu kylfingar heims haga sér á vellinum og hvernig þeir gleðjast og sýna vonbrigði. Áhorfendur þar voru líka mjög skemmtilegir og engin ljót orð féllu til keppenda. Svo lenti ég í því pínlega atviki á 7. holunni á Korpunni í fyrra að þurfa að leita að golfsettinu mínu og golfkerrunni. Rak mig líklega óvart í takkann á rafmagnskerrunni minni þegar ég fór að hjálpa meðspilara að leita að boltanum hans utan brautar. Tók ekki eftir því að hún keyrði áfram eftir brautinni frá okkur og þegar við snérum til baka eftir boltaleitina hófst mjög örvæntingarfull leit að settinu. Hvað átti ég að gera settlaus og þrjár mínútur liðnar? Það var ekki fyrr en hlæjandi holl kvenna fór fram úr okkur og benti mér á settið liggjandi í glompu við flötina að ég tók gleði mína að nýju. Lék brautina samt á pari. Þessi saga hefur verið sögð í ýmsum útgáfum síðan og ég er nýbyrjaður að brosa með. Hefurðu farið holu í höggi? Ég fór holu í höggi á 17. braut á Grafarholtsvelli 16. ágúst 1994. Þá var holan um 175 metra löng og aðeins nokkrir kylfingar höfðu leikið hana á einu höggi. Það vildi svo til að það voru tvö holl á teignum þegar ég tók höggið og holl á teig á 18. braut líka þannig að margir voru vitni að þessu höggi. Þeir fengu allir veitingar í klúbbhúsinu á eftir og glöddust með mér. Þrátt fyrir góða viðleitni hef ég ekki náð þessu 92 I KYLFINGUR I
RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==