KYLFINGUR 2025

I KYLFINGUR I 93 aftur, en ég er vongóður í hvert skipti sem ég slæ upphafshögg á par 3 holu og með golfvernd hjá Verði. Hver er sá besti sem þú hefur spilað með? Geri ekki upp á milli nokkurra klúbbmeistara GR og Íslandsmeistara sem ég náði að leika með þegar þeir voru upp á sitt besta. Lék hringi með Björgvini Þorsteinssyni, Sigurði Péturssyni, Hannesi Eyvindssyni og Ragnari Ólafssyni svo einhverjir kappar séu nefndir. Besti golfvöllur sem þú hefur leikið? Sem betur fer hef ég náð að leika á mörgum góðum völlum og það er erfitt að gera á upp á milli þeirra. Sá besti hlýtur að vera sá sem þú nærð bestum árangri á hverju sinni. Langar samt að nefna The Ocean Course Kiawah Island í USA og Turnberry í Skotlandi þó þeir séu báðir langir og erfiðir. Á síðustu árum hef ég svo tekið ástfóstri við vellina fjóra á Costa Navarino svæðinu í Grikklandi. Völlurinn við Geysi í Haukadal leynir líka á sér og Grafarholtið svíkur engan. Eitthvað hjá GR sem betur mætti fara? Félagsmenn eiga að tjá sig á réttum vettvangi en ekki með nöldri og baktali sem veldur bara leiðindum. Við kjósum stjórn árlega og gerum kröfu til þess að hún marki stefnuna og reki klúbbinn vel. Stjórnin þarf síðan að gera réttmætar kröfur til starfsmanna klúbbsins og tryggja að stefnu hennar sé fylgt eftir. Mér finnst mikilvægt að félagar GR sýni klúbbnum og meðlimum hans virðingu og kurteisi með því að ganga vel um, halda góðum leikhraða, afbóka rástíma tímanlega og brosa meira. Ég óska þó eftir því að vel sé gætt að því að félagar í klúbbnum verði ekki of margir þrátt fyrir mikinn þrýsting um inngöngu. Eitthvað að lokum? Það styttist í vorið um leið um leið og janúar er kominn. Ég og aðrir kylfingar getum því fljótlega farið að huga að næsta golfsumri sem verður vonandi gott og færir okkur margar ánægjustundir. Hópur sextán kylfinga sem fór saman á golfsvæðið Costa Navarino í Grikklandi í október sl. varð undrandi þegar í ljós kom að 25% af hópnum voru örvhentir kylfingar sem allir leika með kylfum fyrir örvhenta. Og það skemmtilega var að þarna voru á ferðinni tvenn hjón sem ekki þekktust fyrir og höfðu bæði talið sig í einstakri stöðu. Þetta voru Birna Guðmundsdóttir og Kolbeinn Finnsson meðlimir í Golfklúbbi Reykjavíkur og Hildur Thors og Helgi Sigurðsson sem eru meðlimir í Golfklúbnum í Úthlíð. Ferðafélagarnir lögðu mikla áherslu á að þau fjögur léku saman í holli snemma í ferðinni. Þegar að því kom var því slegið upp að um „heimsviðburð“ væri að ræða. Þau voru undir mikilli pressu í upphafshögginu, sem allir fylgdust með, en stóðust hana með sóma. Eftir hringinn sögðust þau aldrei hafa leikið betur, enda verið í óvenjugóðum og skilningsríkum félagsskap. Viðburðurinn var ljósmyndaður og eins og sést á meðfylgjandi mynd voru þau fjögur mjög ánægð með meðspilarana sína, telja sig „snúa rétt og vera með hanska á réttri hendi“ þegar þau stilla sér upp á golfvellinum. Þeim fannst líka ástæða til að vekja athygli á því að allt tal um „rétthenta kylfinga“ væri umdeilanlegt. Hvort um „heimsviðburð“ var að ræða er ekki hægt að fullyrða án frekari skoðunar og útreikninga á möguleikum. Í líkindaútreikningi sem gerður var með aðstoð gervigreindarforrits af þessu tilefni kom ma fram að: Líkurnar á því að tveir örvhentir einstaklingar verði hjón eru um 1%. Líkurnar á því að tvenn örvhent hjón hittist óvænt á golfvelli og leiki saman í holli eru mjög litlar eða um 0,0001%. Það blasir því við að þessi skemmtilegi hittingur í Grikklandi kallar á frekari skoðun á málefnum örvhentra kylfinga og að þeir beri saman bækur sínar um það hvort þeir eigi sér einhverja sérstöðu í golfheiminum. Er kannski rétt að nota alþjóðlegan dag örvhentra sem er 13. ágúst ár hvert og efna til móts þeirra á næsta ári? Heimsviðburður á Costa Navarino? Vinstrihandarhollið að hefja leik. Fv. Birna Guðmundsdóttir, Helgi Sigurðsson, Hildur Thors og Kolbeinn Finnsson.

RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==