KYLFINGUR 2025

96 I KYLFINGUR I Hannes Eyvindsson varði titil sinn í karlaflokki 65 ára og eldri í Íslandsmóti eldri kylfinga sem fram fór á Strandarvelli og lauk í gær. Hann lauk leik á 17 höggum yfir pari og fimm höggum betur en næsti maður á eftir. Alls voru 85 keppendur skráðir til leiks og voru leiknar 54 holur á þremur dögum. Aldursflokkarnir voru fjórir 50 ára og eldri og 65 ára og eldri, í báðum kynjum. Það var mikil spenna í flokki kvenna 65 ára og eldri. Steinunn Sæmundsdóttir hafnaði í 2. sæti aðeins höggi á eftir þeirri í því fyrsta. Og höggi á eftir Steinunni var Guðrún Garðars sem átti titil að verja hafnaði í 3. sæti. Við óskum Hannesi innilega til hamingju með titilvörnina og Steinunni og Guðrúnu með þeirra árangur. Hannes Eyvindsson varði titil sinn – Íslandsmeistari í 65+ Úrslitin í Íslandsmóti golfklúbba í kvennaflokki réðust á Jaðarsvelli á Akureyri 26. júlí sl. GK sigraði með minnsta mun, en andstæðingurinn í úrslitum mótsins var Golfklúbbur Reykjavíkur. Alls tóku átta lið þátt í 1. deild kvenna í keppninni um Íslandsmeistaratitil golfklúbba 2025. Fyrst var leikið á Íslandsmóti golfklúbba í kvennaflokki árið 1982. Mótið í ár er það 42. í röðinni. Frá árinu 1982 hafa 4 klúbbar fagnað þessum titli. Hart var barist um efsta sætið í B-riðli. Eftir sigra í fyrstu tveimur leikjum sínum mættust sveitir GR og GK í hreinum úrslitaleik um efsta sæti riðilsins. Leikurinn var í járnum allan tímann. Elsa Maren Steinarsdóttir setti flott pútt í á 18. holunni, og tryggði GR með því jafntefli í leiknum. Það reyndist nóg, þar sem sveit GR fékk hálfan vinning meira en GK í hinum tveimur leikjum riðilsins. Golfklúbbur Reykjavíkur sigraði Golfklúbb Mosfellsbæjar 4-1 í undanúrslitaleiknum. Fjórir af fimm leikjum viðureignarinnar enduðu á átjándu holunni, en flestir þó GR í vil. GK vann GA svo í hinum undanúrslitaleiknum og þar með ljóst að GR og GK myndu berjast um sigurinn. Úrslitaleikurinn var í hnífjafn og spennandi frá upphafi. Þegar tólf holur voru liðnar voru tveir leikir jafnir, GK upp í tveimur og GR upp í einum. Staðan breyttist lítillega á síðustu holunum. Keilir sigraði tvo leiki og GR einn, en tveir leikir enduðu í bráðabana. Guðrún Birna (GK) og Valdís Þóra (GR) voru jafnar eftir átján holur, sem og Elsa Maren (GR) og Guðrún Brá (GK). Elsa fékk fugl á 19. holunni og sigraði leikinn, og öll augu því á leik Valdísar Þóru og Guðrúnar Birnu. Eftir pör á 19. og 20. holu var það loks á 21. holunni sem hægt var að skilja þær að. Teighögg Valdísar endaði í vítasvæðinu og par Guðrúnar tryggði GK Íslandsmeistaratitilinn. Golfklúbbur Reykjavíkur hefur oftast sigrað eða 22 sinnum. Lið GR. Fv.: Frá vinstri: Ásdís Valtýsdóttir, Helga Signý Pálsdóttir, Nína Margrét Valtýsdóttir, Auður Sigmundsdóttir, Karitas Líf Ríkharðsdóttir, Þóra Sigríður Sveinsdóttir, Berglind Björnsdóttir, Valdís Þóra Jónsdóttir, Elsa Maren Steinarsdóttir. ÍSLANDSMÓT GOLFKLÚBBA – 1. DEILD KVENNA Sveit GR í öðru sæti eftir harða keppni

RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==