KYLFINGUR 2025

I KYLFINGUR I 99 Golfklúbbur Reykjavíkur hefur í dag opnað nýja salernisaðstöðu á Korpu fyrir félagsmenn og gesti. Um er að ræða fyrsta áfanga í endurbótum á aðstöðu á báðum völlum klúbbsins. Á Korpu er ný salernisaðstaða milli 14. og 23. brautar. Vinna stendur einnig yfir við uppsetningu salernisaðstöðu á 6. braut sem áætlað er að opni á næstu dögum. Á 6. braut í Grafarholti hefur jafnframt verið tekin í notkun ný salernisaðstaða. Í haust hefjast framkvæmdir við að koma upp nýrri aðstöðu milli 14. og 15. brautar í Grafarholti, sem opnar næsta vor. Að þeim framkvæmdum loknum verður salernisaðstaða í boði í Grafarholti á 6. braut, við 10. teig og milli 14. og 15. brautar. Salernin eru lokuð með talnalás, til þess að opna þau þarf að fylgja eftirfarandi þrepum: Ýta á 5 til að virkja talnalás Stimpla inn 1934. Ýta á # Ný salernisaðstaða tekin í notkun á völlum GR Í sumar hefur staðið yfir skemmtileg liðakeppni fyrir 65 ára og eldri kylfinga í GR. Hver leikur er 9 holu holukeppni og leikið var á Korpu. Liðið með lægra samanlagt skor vinnur holu. Það voru 16 lið með 32 leikmönnum sem skráðu sig til leiks. Leiknar voru 7 umferðir og dregið var í fyrsu 7 umferðirnar um það hvaða lið mættust. Í síðustu þrjár umferðirnar var raðað eftir stöðu. Þetta þýddi að efstu liðin mættust innbyrðis og einnig þau lægstu. Fyrsta umferðin var leikin í lok maí og lokaumferðin 1. september. Lokastaða efstu liða var eftirfarandi: 1. sæti Royal St. Cloud – Birgir Guðbjörnsson og Walter Hjartarson. 2. sæti Inga og Ingi – Ingveldur B Jóhannesdóttir og Ingi Þórðarson. 3. sæti Birnirnir – Björn S. Björnsson og Sveinbjörn Örn Arnarson. 4. sæti Gunningi – Gunnar Þór Geirsson og Ingi Þór Hafsteinsson. Keppnin var hníf jöfn og spennandi þar sem tvö efstu liðin náðu sér í 6 vinninga og tvö næstu voru með 5 vinninga af 7 mögulegum. LIÐAKEPPNI 65 ÁRA OG ELDRI

RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==