Íslensk bókavinnsla

28 Kröfur Svansins fyrir prentsmiðjur eru mjög strangar, sérstaklega hvað varðar efnanotkun, sem er þýðingarmesti umhverfisþátturinn í rekstri prentsmiðja en auk þess er: • Lögð áhersla á notkun umhverfisvottaðs pappírs. • Hlutfall úrgangspappírs við framleiðsluna lágmarkaður • Flokkun úrgangs ásamt réttri meðhöndlun hættulegra efna er tryggð. • Hvatt til notkunar endurnýjanlegra orkugjafa og lágmörkunar á orkunotkun við framleiðsluna. • Hvatt til þess að valdar séu umhverfismerktar vörur og þjónusta í innkaupum. • Gerð er krafa um reglulega þjálfun og fræðslu starfsmanna ásamt ferlum til að stýra umhverfisstarfi. • Tryggt er að fyrirtækið uppfylli öll lög og reglugerðir sem eiga um starfsemina. Norræna umhverfismerkið Svanurinn er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna sem byggist á óháðri vottun og skilyrðum sem taka tillit til alls lífsferils vöru og þjónustu. Tilgangur Svansins er að ýta undir sjálfbæra þróun samfélagsins svo að komandi kynslóðir hafi jafna möguleika og við til að mæta þörfum sínum. Alls er hægt að votta um 70 mismunandi vöru- og þjónustuflokka. Íslenskur prentiðnaður er að standa sig frábærlega í umhverfismálum. Enginn iðnaður á Íslandi er eins umhverfisvottaður og prentiðnaðurinn. Í nýlegri greiningu hjá Eflu verkfræðistofu, sem kom út í maí 2024, má sjá samanburð á kolefnisspori á prentun hérlendis eða erlendis. Notast var við gögn úr framleiðslu Prentmet Odda og leiddi greiningin í ljós að hvergi sé umhverfisvænna að framleiða bækur fyrir íslenskan markað en hér á landi. Nánast allar prentsmiðjur á Íslandi séu Svansvottaðar og notist nær einvörðungu við FSC-sjálfbærnisvottaðan pappír af lífrænum uppruna við framleiðslu á bókum.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==