Prentmet Odda Skólinn

11 4. Stafasnið (character style) og málsgreinasnið (paragraph style) er notað á mismunandi hátt. Málsgreinasnið er notað fyrir grunntextann í málsgreininni en stafasnið fyrir leturbreytingar einstakra orða innan málsgreinar. 5. Á mastersíðum eru blaðsíðutölin staðsett, leiðarlínur (guides) og grafík eða texti sem á að vera óbreytt á mörgum síðum. Hægt er að hafa margar mastersíður í skjali. Smærri verkefni 1. Hver er stærð nafnspjalda? 2. Hvaða forrit eru notuð við uppsetningu? 3. Hvernig er best að hanna nafnspjald? Smærri verkefni 1. Nafnspjöld eru venjulega í stærðinni 85x55 mm. 2. Þau er hægt að setja upp hvort heldur í Illustrator eða Indesign, eftir því hvað hentar hverjum og einum. 3. Hugmyndir að hönnun nafnspjalda er auðvelt að nálgast á internetinu. Annað: 1. Vöruþróun með viðskiptavinum. 2. Prentmet Oddi vinnur mikið fyrir og með auglýsingastofum. 3. Til hvers eru verkseðlar? 4. Gallar og úrlausnir þeirra? 5. Er Prentmet Oddi samþykkt sem framleiðslufyrirtæki? Annað: 1. Prentmet Oddi hefur á undanförnum árum verið mikið í vöruþróun með viðskiptavinum sínum og hefur sú þjónusta mælst mjög vel fyrir. Þróunin hefur verið allt frá því að skapa nýja vöru, breyta eldri vöru, laga stærðir, finna hagkvæmara hráefni og síðast en ekki síst útlit vöru í heild sinni. Þarna er verið að tala um frá öskju í display yfir í utanyfirkassa á bretti í gáma til útflutnings, allt þetta þarf að úthugsa áður en vara fer á markað. 2. Þar sem ekki eru margir formhönnuðir í landinu hafa auglýsingastofur mjög oft fengið okkur í lið með sér til að hanna umbúðir utan um vörur sem þeir síðan hanna grafíkina á, þetta samstarf hefur verið okkur og stofunum mjög mikilvægt. Einnig hafa stofurnar sent okkur grunnhugmyndir og við síðan fullhannað þær. 3. Verkseðlar eru aðal stjórn- og upplýsingatæki fyrir þá sem vinna að verkum hjá Prentmeti Odda, þar eru skráð verkferlar, þ.e. í hvaða deildir verkið á að fara, hvernig á að vinna verkið í smáatriðum og að sjálfsögðu allar óskir viðskiptavinar. Að verki loknu eru þessir seðlar settir í fæl svo hægt sé að ganga að þeim gögnum vísum þegar varan verður pöntuð aftur. (Farið verður yfir verkseðil með nemum og mikilvægi hans ítrekað.) 4. Ef gallar koma upp hjá okkur er strax tekið á þeim málum bæði hér innandyra og með kaupanda, farið er nákvæmlega yfir allt verkið og það greint til að við getum komið í veg fyrir að það gerist aftur. Við fyllum út skýrslur sem kallast frábrigði ef galli kemur í ljós áður en varan nær að fara úr húsi en kvartanir ef viðskiptavinurinn hefur fengið vöruna í sínar hendur áður en gallinn kom í ljós. Sem betur fer höfum við mikið af góðu starfsfólki sem er vel vakandi yfir því hvað það er að gera og hefur það skilað okkur mjög lágri tíðni galla og frábrigða, en alltaf má gera betur í þessum efnum. Til að fækka göllum í framleiðslu er mjög mikilvægt ef vafamál varðandi framleiðslu koma upp að starfsmenn deilda tali saman og bakki hvern annan upp með vinnsluna á verkinu (rýni í vinnu-pappíra saman). 5. Prentmet Oddi hefur verið tekið út af Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur og fengið vottun um að það sé með alla þætti framleiðslu sinnar og umhverfis á hreinu svo að það geti framleitt umbúðir fyrir matvælaiðnað. Einnig hefur Prentmet Oddi verið samþykkt af mjög kröfuhörðum fyrirtækjum erlendis sem eru bæði í matvælaframleiðslu og smásölu á þeim, þar má nefna fyrirtæki eins og Sainsbury’s, Marks & Spencer, Tesko o.fl., einnig hafa stóru sjávarútvegsfyrirtækin á Íslandi samþykkt Prentmet Odda sem umbúðafyrirtæki og eru þau með þeim kröfuhörðustu í heimi varðandi þessi mál enda gefum við íslendingar okkur út fyrir að vera með besta fisk í heimi.

RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==