Prentmet Odda Skólinn

12 Formhönnun Forvinnsluhluti umbúða sér um að búa til og þróa stansa fyrir umbúðir utan um vöru eða prentverk. Deildin sér einnig um að hanna eða koma grafík yfir á stansateikningu fyrir prentun sem er síðan stönsuð í umbúðadeild fyrirtækisins. Öll umbúðaframleiðsla er prentuð á pappír eða í örfáum tilfellum á bylgju. Plotter Plotter er skurðarvél sem sker eftir stansateikningu. Hann getur einnig lesið register-punkta og mun þá skera nákvæmlega meðfram grafíkinni. Innhaldið skiptir máli – og umbúðirnar líka! Prentmet Oddi býður alhliða ráðgjöf til að mæta fjölbreyttum óskum viðskiptavina sinna varðandi umbúðir, sbr. vöruþróun, formhönnun, prentun, hráefnanotkun, vörumeðhöndlun, nýtingu í flutningum, og síðast en ekki síst styttri afhendingartíma og hagstætt verð. Prentmet Oddi uppfyllir öll skilyrði Heilbrigðiseftirlitsins sem skipta máli varðandi hreinlæti og heilbriðgðismál við framleiðslu matvæla- umbúða. Mörg af stærstu og framsæknustu fyrirtækjum landsins eru viðskiptavinir Prentmets Odda, þar sem hraði, gæði, og persónuleg þjónusta skiptir öllu máli. Spurningar & svör 1. Hvernig tökum við á móti viðskiptavinum? 2. Hvernig er samvinnan með viðskiptavinum? 3. Afhverju eru gerð sýnishorn? 4. Hvaða tæki og forrit eru notuð? 5. Hvar eru stansarnir framleiddir? 6. Hvernig fer grafíkvinnsla fram? 7. Til hvers eru litaproof? 8. Hvenær fer verkið af stað í framleiðslu? 9. Hvernig eru stansar skráðir og geymdir? 10. Hvernig er grafík skráð og geymd? Fróðleiksmolar Kasemake Forritið sem býr til og meðhöndlar stansateikningar er breska forritið Kasemake. Gott að vita Allar öskjur hjá okkur eru framleiddar á pappír sem kemur frá nytjaskógum í Evrópu. Þegar tré er fellt er aðeins efsti hluti þess, ca. 13%, nýttur í pappírsframleiðslu, hinn hlutinn fer í húsbyggingar, húsgagnagerð og orkuvinnslu. Þannig stuðlum við að skógrækt, sem er eitt af því besta fyrir loftslagið og umhverfið. Á allra vörum - standur fyrir gloss Rafhlöðuaskjan sem var hönnuð fyrir 30 ára afmæli Prentmets Odda Nokkur sýnishorn af umbúðum

RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==