13 1. Yfirleitt kemur viðskiptavinur til okkar með vöruna sem hann vantar umbúðir utan um eða hann sendir okkur fyrirspurn á tölvupósti. Okkar starf er að átta sig á hverju hann sækist eftir og finna jafnvel lausnir fyrir hann sem honum hefði ekki dottið í hug. Viðskiptavini á að líða þannig að þeir treysti okkur fullkomlega sem fagfólki til þess að útfæra verkið fyrir sig á skilvirkan og smekklegan hátt. 2. Við ákveðum pappír og styrkleika saman miðað við vöru viðkomandi. Einnig þarf að spyrja um hversu fljót og stór framleiðsla viðkomandi er með. Því stærri framleiðsla því hraðari þarf samsetning öskju að vera til þess að spara viðkomandi framleiðslukostnað. Þá þurfum við að passa að askjan sé einföld í pökkun og að hún gangi í gegnum límingarvélarnar okkar. Sumir viðskiptavinir kippa sér ekki upp við smá handavinnu við samsetningu öskjunnar en við verðum alltaf að benda þeim á þá vinnu svo að það komi ekki aftan að þeim þegar þeir fá vöru afhenda. 3. Við gerum sýnishorn af umbúðunum til þess að viðskiptavinur geti mátað og prófað vöruna sína og einnig fyrir okkur til þess að athuga hvort að þær gangi upp t.d. fyrir límingarvélar og slíkt. Við vinnum þetta saman með fólkinu á límingar- og stansavélum. Stundum þurfum við að gera smá breytingar þangað til að við erum komin með stans þar sem bæði okkar framleiðsla og viðskiptavinur eru sátt með. 4. Við notum forritið Kasemake til þess að teikna upp stansana. Þegar við meðhöndlum svo grafíkina þá eru það forritin Illustrator eða InDesign sem við notum. 5. Annað hvort eru stansarnir framleiddir hér innanhús eða erlendis. Minni og einfaldir stansar eru smíðaðir hér heima en ef þeir eru orðnir mjög stórir eða flóknir þá eru þeir smíðaðir erlendis. Stundum veltur það líka á álaginu í húsinu hvort að hægt sé að smíða hér vegna anna starfsfólks. Þetta er allt metið á þeim tíma sem verið er að vinna verkið. 6. Yfirleitt fáum annað hvort grafík senda til okkar frá viðskiptavini eða auglýsingastofu á hans vegum. Okkar hlutverk er þá að fara yfir liti og athuga hvort grafíkin passi örugglega á stansinn sem verið er að nota. Tökum út fyrir límflipum ef það var ekki gert og setjum inn vörunúmer okkar og logo. Við höfum líka tekið að okkur að vinna grafíkina sjálf frá grunni fyrir viðskiptavini. Síðan vilja sumir upphleypingu, fólíugyllingu eða sérstaka lökkun og það er allt sem við pössum upp á að sé rétt gert. Eftir þetta ferli þá er send próförk í tölvupósti á viðskiptavin til samþykkis. 7. Við prentum hágæða litaproof fyrir fyrstu prentun á nýrri grafík. Viðskiptavinur hefur þá tækifæri til að sjá hvernig litir, myndir og texti koma nokkurn veginn út í offsetprentun áður en verkið er sett af stað. Ef viðskiptavinur samþykkir litaproof þá hafa þau sem vinna á prentvélunum líka smá litastýringu þegar þau eru að stilla inn hjá sér. Þá sjá þau hvernig viðskiptavinur vill hafa litina. 8. Þegar að viðskiptavinur er búinn að samþykkja í pósti eða skriflega bæði stans og grafík þá sendum við þetta af stað í framleiðslu. 9. Stansarnir eru skráðir í gagnasafn Kasemake forritsins svo að það sé auðvelt að leita að þeim. Skjölin sjálf eru geymd á server og Kasemake linkar sig við þau. 10. Við notumst aðallega við sérstaka umbúðaseðla (þessa bleiku). Á seðlunum koma fram stansanúmer og vörunúmer. Vörunúmerin eru þau sem geyma alla grafík inn á. Við gefum hverri einustu vöru/umbúðum vörunúmer eins og t.d. A15049. Undir því númeri er t.d. sleeve fyrir Ölgerðina sem heitir Kremúlaði. Ef það skildi koma einhvern tíma breyting á þeirri grafík þá breytum við henni undir því númeri. Það er ekki gert nýtt númer eins og í digital eða offset. Þetta er gert til þess að forðast það að röng grafík verði prentuð óvart. Við eyðum út eldri gögnum undir númerinu þannig að þar sé alltaf nýjasta grafíkin.
RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==