14 Fróðleiksmolar XMF Er útskotsforrit í tölvu til að margfalda prentverkið og setja upp á prentplötur. Phoenix Er notað til að skjóta út umbúðateikningum uppá prentplötuna. Útskot Þegar próförk hefur verið samþykkt, er verkið sent í filmu- og plötugerð þar sem verkinu er „skotið út“ sem kallað er, þ.e. raðað niður miðað við stærð pappírsarkar (útskot). Þegar því er lokið er verkið sent á plötuskrifara sem keyrir út prentplötur (af mismunandi stærð eftir tegund prentvélar) – eina plötu fyrir hvern lit. Áður voru verkefni keyrð út á filmur og lýst á prentplötur eftir filmunum. Síðustærð verksins ræður því hversu margar síður komast á pappírs- örkina. Við viljum alltaf fullnýta örkina til að sem minnst fari til spillis. Einnig þarf að passa legu, trefjastefnu, í pappírnum. Lega þarf að vera rétt til að bókband prentgripsins verði endingargott og fallegt. Spurningar & svör 1. Hvaða þekkingu/menntun hefur starfsfólk í deildinni? 2. Hvert er hlutverk plötudeildar í stuttu máli? 3. Hvernig koma verk til vinnslu? 4. Hvaða forrit eru helst notuð í plötudeild? 5. Á hvaða formati koma verkin? 6. Hvað er plötuskrifari og hvernig virkar hann? 7. Hvað er útskot? 8. Hverjar eru algengustu útskotsstærðirnar? 9. Til hvers eru filmur notaðar? 10. Hvernig er stimpill gerður? 11. Hvað er Server? 12. Hvað ber að hafa í huga þegar verk eru sett inn í Serverinn? 13. Hvernig fer platan í gegnum vélina í stuttu máli? Gunnar og Kristinn rýna í prentplötu 16 síðna úskot Harmonikku brot Kristinn vinnur í XMF útskotsforritinu
RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==