15 1. Allir starfsmenn eru lærðir prentsmiðir. 2. Móttaka verka og fullvinnsla fyrir prentun; • Passa að gæðamál séu í lagi • Myndir í réttri upplausn • Letur sé í lagi • Síðustærð rétt með skurðarmerkjum og myndir blæði c.a 2-3 mm út fyrir skurð. • Skjóta út verkum á ákveðnar pappírsstærðir • Passa að rasti sé réttur á plötu. Óhúðaður pappír með grófum rasta (133 dpi) og húðaður pappír með fínum rasta (175 dpi). • Prenta út prófarkir og gera hágæða litaproof. 3. Þau koma oftast inn með þremur leiðum, þ.e. með tölvupósti, með forriti á netinu sem getur sent stór skjöl t.d. WeTransfer eða Dropbox, eða á USB lykli. 4. Útskots- og útkeyrsluforritið sem við notum til að gera prentplötur heitir XMF og kemur frá Fuji. Phoenix er notað fyrir umbúðir. Einnig notum við InDesign, Photoshop, Illustrator og Pitstop til að laga og breyta PDF- skjölum fyrir prentun. 5. Flest öll verk koma á PDF formati. Öll vinnsla fyrir prentun miðast við PDF format. 6. Plötuskrifari notar laserljós til að lýsa á plötur. Platan fer á tromlu sem snýst mjög hratt og laserinn brennir á plötuna, eftir það fer platan í framköllun. 7. Það kallast útskot þegar síðum er raðað á pappírsörk, sem er síðan brotin saman og blaðsíður raðast upp í réttri röð. 8. 4, 8, 16 og 32 síðna útskot eru algengust í bókum og tímaritum. 6 og 12 síður eru oft notaðar í bæklingum. 9. Til að gera gyllingarklisjur og upphleypingar þarf að gera filmu fyrst. Við prentum verkin út úr bleksprautu- prentara með sérstöku svörtu bleki á glæru. 10. Laservél grefur í sérstakt gúmmíefni sem þolir hitann af lasernum. Síðan er efnið skolað með vatni og þurrkað og límt á stimpilinn. 11. Server er geymslustaður fyrir tölvugögn. Allir starfsmenn hafa aðgang að server til að afrita og ná í gögn. 12. Að nafn og númer verks sé á möppunni og hún sett undir ákveðið númerakerfi. 13. Platan fer frá kassettunni (magasíninu) inn á rana sem flytur plötuna inn á lýsingarsvæðið þar sem laserljós brennir plötuna með því verki sem á hana er sent með XMF forritinu. Síðan flyst platan sjálfkrafa inn í framköllunina þar sem framköllun fer fram.
RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==