16 Stafræn prentdeild Stafræn prentun mun ekki leysa offsetprentun eða aðrar prentaðferðir af hólmi í bráð, öllu heldur mætti tala um viðbót við eldri prentaðferðir. Ef við berum saman kostnaðarkúrfur fyrir stafræna prentun annars vegar og offsetprentun hins vegar, einkennist stafræn prentun af lágum upphafskostnaði og háu stykkjaverði. Í offsetprentun eru þessi hlutföll alveg öfug, hár upphafskostnaður og lágt stykkjaverð. Hátt stykkjaverð í stafrænni prentun stafar af því að vélarnar eru hægvirkar miðað við offsetprentvél. Aðrar ástæður eru þær að oft fylgja dýrir viðhaldssamningar stafrænum prentvélum og kostnaður vegna hluta til rekstrarins er hár (prentduft, tromlur o.fl.). Nákvæmlega hvar hagkvæmnismörkin liggja miðað við offsetprentun fer eftir stærð og tegund prentgrips. Þó er hann yfirleitt tilgreindur einhvers staðar á bilinu 500–1.000 eintök. Erfitt er að segja til um hvar þessi mörk munu liggja í framtíðinni en víst er að samkeppnin frá stafrænni prentun hefur kynt undir tækniþróun hjá framleiðendum offsetprentvéla. Sá tími sem fer í inntöku á nýrri offsetprentvélum hefur minnkað geysilega síðan stafræn prenttækni hóf innreið sína á markaðinn. Á sama tíma hefur kostnaður á rekstrarhlutum til stafrænnar prentunar lækkað og þar að auki eru menn farnir að framleiða stafrænar prentvélar fyrir stærri arkir, en þá fer prentun á stærri upplögum að verða hagkvæm. Þegar hagkvæmnissamanburður er gerður milli offset- og stafrænnar prentunar má heldur ekki gleyma að í hefðbundinni prentun bætist við kostnaður vegna plötu- og filmugerðar og litaprófarka. Ef prentað er stafrænt falla þessir kostnaðarliðir niður. Hin harða samkeppni sem framleiðendur stafrænna prentvéla hafa háð sín á milli hefur leitt til þess að stafræn prentun er farin að nálgast offsetprentun að gæðum. Það hefur sýnt sig að gæði prentgripa sem prentaðir eru stafrænt eru mjög breytileg eftir því hver á í hlut. þeir sem hafa getað nýtt kosti stafrænna prentvéla einna best og náð lengst hvað varðar gæði og ný tingu eru prentþjónustur og prentsmiðjur sem sinna einnig prentsmíð. Aðalástæðan fyrir þessu er sú að í stafrænni prentun þarf vinnslan að ganga hratt og örugglega fyrir sig, en til þess þarf mikla reynslu í stafrænni prentvinnslu og þekkingu í að meta prentárangur til að ná fram góðum prentgæðum. Fróðleiksmolar Quite Imposing Er útskotsviðbót í Adobe Acrobat sem er notað meðal annars í að margfalda á pappírsörkina til nýtingar. Einnig til að skjóta út bókum og tímaritum. Um prentun Allar heimildir benda til þess, að Jón biskup Arason hafi fyrstur manna flutt prentsmiðju til Íslands, en ekki er ljóst hvaða ár það var. Einnig segja allar heimildir, að prentarinn hafi heitið Jón Matthíasson eða Mattheusson og verið kallaður hinn sænski. Brynjar Már vinnur í stafrænni prentun Stafræn prentvél af gerðinni Ricoh Ein af stafrænu prentvélunum í Prentmeti Odda
RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==