18 Prentdeild • Offsetprentun • Hæðarprentun Í prentdeildum eru prentplöturnar festar í prentvélar og litir stilltir saman. Með vissu millibili, meðan á prentun stendur, eru svo teknar prentarkir til skoðunar þar sem samstilling lita er skoðuð og litamagn er mælt. Oft óskar viðskiptavinur/hönnuður eftir að vera viðstaddur þegar prentlitir eru stilltir. Þegar prentun er lokið fara þau verkefni, sem ekki þarfnast framhaldsvinnslu, beint í skurð. Speedmaster 52 Speedmaster 52 vélin er sú minnsta í prentdeildinni, hér eru aðallega reikningar, bréfsefni og umslög prentuð. Reikningar eru einnig oftast með númeringu og rifgötun. Séu upplög stór í prentun á umslögum, þá er notast við umslagafeeder, sý nikennsla fer fram á því. SM 52 eru 2, 4 og 5 lita vélar. Hámarksstærð til prentunar er 37x52 cm (prentflötur 36x52 cm). Lágmarksstærð til prentunar er 10,5x14,5 cm. Roland 305 • Hámarksstærð til prentunar 59x74cm (prentflötur 56,3x74 cm). • Lágmarksstærð 22,3x32 cm. • Prentar 5 liti. Fjórlit auk sérlitar eða olíulakks. • Á Roland 305 eru möguleikar til að prenta beggja vegna í einu, 2+3 eða 1+4. Roland 706 • 6 lita með tvöföldu lakkkerfi. Fyrir vatnslakk og UV-lakk. • Hámarksstærð til prentunar 74x102 cm (prentflötur 71,3x102 cm). • Lágmarksstærð til prentunar 34x48 cm. • Undirbúningur prentara hefst með lestri verkseðils og í framhaldi af því tekin til þau hráefni sem verkið krefst. • Farið er vel yfir hvort pappírslega sé rétt miðað við uppsetninguna á verkinu. • Upplý singar um verkefni skráð í tölvu prentvélar. • Litastý ring lesin inn á prentvélina frá Printflow kerfinu. • Plötur settar á vél. • Ílag og frálag stillt fyrir pappírinn. • Prufuþrykkt, þekja litar mæld. Litir stilltir saman (register). • Prófarkir bornar saman við prentun og kannað hvort útskot sé rétt. • Sé pappírsþyngdin mikil, t.d. 425 gr karton, þarf að breyta grípurum í prentvélinni. • Sé grípurum ekki breytt munu þeir setja mark á örkina, þ.e. merja framkantinn. Fróðleiksmolar Arkaoffset Offsetprentaðferð þar sem prentað er á arkir. Sú aðferð er algengasta í Prentmet Odda. Strengoffset Er notað aðallega fyrir stærri upplög, en í Prentmet Odda er ein vél sem er notuð fyrir samhangandi reikninga. Þekjumælir er notaður til að mæla punktastækkun og einnig til NCI-mælingar. Roland prentvél Vigfús Þór athugar gæði prentunar
RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==