19 Speedmaster 102 - 08 Vélin er með átta prent unit. Hennar sérstaða er að hún getur prentað fjórlit báðum megin í einni umferð. Hún getur líka prentað annarsvegar og þá er hægt að leika sér með átta unit, t.d. fjórlit + 3 sérliti + lakk, eða allskonar. Vélin getur prentað með lakki þ.e.a.s. olíulakki, matt + glans spotlakki eða heillakki. Pappírsstærð sem þessi vél prentar á: Annarsvegar er 720 x 1020 mm og minnsta er 400 x 420 mm Beggja vegna er 720 x 1020 mm og minnsta er 500 x 420mm Fyrstu fjögur prent unit-in geta prentað fulla stærð 70 x 102, en seinni fjögur geta prentað 68,5 x 102 vegna þess að trukk sílendrarnir á seinni fjórum eru minni vegna viðsnúningstromlunnar. Viðhald prentvéla er mjög þýðingarmikið vegna gæða, hraða og pappírs úrgangs. Farið er vel eftir leiðbeiningum úr viðhaldshandbók varðandi tíma á smurningu og síuskipti. Öll almenn prentverk sem fara í gegn um þessa vél, Speedmaster 102 - 08, eru "high quality printing". Spurningar & svör Offsetprentun 1. Hvað er offsetprentun? 2. Hvað eru CMYK, GN og Fólíulitir? 3. Hvaða nám liggur að baki starfsheitinu offsetprentari? 4. Hvenær telst prentari fullnuma í greininni? 5. Hvaða eiginleikum býr góður prentari yfir? 6. Geta allir lært prentun? 7. Hvað gerir prentari auk þess að prenta? 8. Hvaða verk henta til offsetprentunar? 9. Hvernig undirbýr prentari verk til prentunar? 10. Hvernig er haldið utan um allt hráefni sem þarf til prentunar? 11. Hvað er: Register, þurrkur, dúbblering, tognun og skítur á fagmáli prentara? 12. Hvað er erfiðast að prenta? 13. Hvað eru margar tegundir til af lakki? Offset prentun 1. Offsetprentun hjá Svansvottaðri prentsmiðju er í stuttu og hnitmiðuðu máli, samspil jurtafarva og vatns. Fletir sem prenta skal á eru lý stir upp á prentplötu og loðir/binst prentliturinn við þessa fleti. Prentflötur er lý stur réttlesandi á plötuna, sem síðan þrykkist á gúmmídúk (speglast) af honum yfir á pappírinn (offset). Lýstu fletirnir hrinda frá sér prentlitnum með aðstoð vatns, og ef samspil vatns og prentlitar er ekki rétt dreifist prenlitur yfir alla plötuna og myndar það sem prentarar kalla þurrk yfir prentörkina. 2. CMYK-serían er notuð til hefðbundinnar fjögurra lita prentunar. C=Cyan (blár), M=magenta (rauður), Y= Yellow (gulur) og K=Black (svartur). GN-serían er eins en er eingöngu notuð til prentunar á matvælaumbúðir. GN er lyktarlaus prentlitur. Fólíu-serían er ætluð til prentunar á plastefni eða önnur efni sem þurfa að þorna fljótt. 3. Tækniskólinn býður upp á iðnnám í prentun. Meðalnámstími er þrjú ár, að meðtöldu grunnnámi í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum. Samtals fjórar annir í skóla og 48 vikna starfsþjálfun. Náminu lýkur með sveinsprófi sem veitir rétt til að starfa við iðnina og til náms til iðnmeistaraprófs. 4. Það skemmtilega við offsetprentun er að vera stöðugt að læra eitthvað nýtt. Segja má að prentari sé aldrei fullnuma heldur sí og æ bætandi í reynslusarpinn. 5. Fyrst og fremst fagleg vinnubrögð. Hafa áhuga á nýjungum og bættum verkreglum til að viðhalda og auka prentgæði, jafnframt því að kunna vel skil á prentvélum, ekki síst viðhaldi og þrifum.
RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==