Prentmet Odda Skólinn

20 6. Nei, alls ekki! Án gríns. Það geta allir sé jákvæðni og metnaður fyrir hendi. 7. Prentarar sjá um endalaust og nauðsynlegt viðhald prentvéla. Stilla, skipta út völsum, smyrja o.s.frv. Auk þess sjá þeir um að nánasta umhverfi prentvélanna sé í lagi. 8. Verk þar sem viðskiptavinur hefur sérstakar óskir um pappír eða prentliti, t.d. metallicliti (málmliti). Silfur, gull eða aðrir sérblandaðir litir út frá þessum litum. Pantone sérlitir og síðast en ekki síst verkefni til umbúðaprentunar en slík verkefni eru afar sérhæfð, þar sem verkferillinn er oftast mun lengri. Prentun getur verið með allt að 6 litum ásamt vatns- eða UV-lakki. Gera þarf ráð fyrir úrtaki fyrir límingu, en reglan er sú að þar sem er líming má hvorki vera litur né lakk. Stönsun í Bobst eða Heidelbergvél, og að lokum líming og pökkun. 9. Undirbúningur prentara hefst með lestri verkseðils og í framhaldi af því tekin til þau hráefni sem verkið krefst: Upplýsingar um verkefni settar í tölvu prentvélar. Pappírsstærð og þyngd stillt inn. Pressur á pappír og loftmagn stillt. Áætlað magn hvers litar stillt inn í tölvu. Plötur settar í prentvélina. Íleggjari og frálag stillt fyrir pappírinn. Gríparar stilltir fyrir pappírsþykkt. Prufuþrykkt. Litir stilltir saman (register). Prófarkir bornar saman við prentun. Þekjumæling prentlita (density). Samræming vatns og farva. Prentun. 10. Prentarar/lagerstjórar skrá pappír sem fer í verkið út af lager á sérstök eyðublöð. Afrit fylgir síðan verkefni í umslaginu. Skráð er út magn, stærð, þyngd og lega pappírs. Jafnframt er gerð regluleg talning á öðrum hráefnum til prentunar. 11. Register er bæði samstilling lita og eins það að prentvélin dragi pappírinn alltaf rétt, svo prentflötur sé eins á prentörkinni. Þurrkur kallast það þegar samspil vatns og farva er ekki rétt. Dúbblering myndast t.d. við rangar pressur, laust blanket eða of mikið loftsog í prentvél. Tognun er rangt rakastig í pappír/prentsal. Skítur er notað um margnota innstilliblöð. 12. Ekkert verk er erfitt, aðeins mislétt. Lendi prentarar í vanda leysa þeir hann í sameiningu. 13. Ef við nefnum olíulakkið er aðallega um þrjár tegundir að ræða; natural-, glans- og mattlakk. Naturallakk er oftast notað til hlífðar prentverki enda oft kallað hlífðarlakk. Hæðarprentun 1. Hvernig fáið þið verkin ykkar í hendur? 2. Á hvað prentið þið? 3. Er hægt að prenta alla liti? 4. Getið þið númerað og rifgatað? 5. Er hægt að prenta báðum megin í einu? 6. Hvað er erfiðast að prenta (gera)? 7. Hvað er skemmtilegast að prenta (gera)? 8. Getið þið prentað á servíettur? 9. Hvað er það minnsta sem þið getið prentað? 10. Hvað er það stærsta sem þið getið prentað? 11. Er hægt að prenta á öll umslög? 12. Er verra að prenta á umslög en pappír? 13. Hvað er hæðarprentun (trukk)? 14. Hvað er fólíuprentun? 15. Hvað er thermoprentun? 16. Hvað er stönsun? 17. Hvað er upphleyping? 18. Hvað er felling - rifgötun? 19. Hvað er tölusetning? 20. Af hverju þarf stærri gripkant hjá ykkur en í Bobst vél þegar stansað er?

RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==