Prentmet Odda Skólinn

22 Umbúðvinnsla Prentmet Oddi framleiðir umbúðir fyrir fjölda íslenskra og erlendra fyrirtækja sem dreifa vöru sinni á alþjóðamarkað, s.s. fyrirtæki í sjávarútvegi, matvæla- og sælgætisframleiðslu, lyfjaiðnaði, snyrtivöruframleiðslu o.fl. Fyrirtækið mætir ýtrustu kröfum á sviði umbúðaprentunar og veitir ráðgjöf við vöruþróun, formhönnun, prentun, hráefni og allt annað er varðar umbúðir. Við bjóðum upp á skamman afgreiðslutíma sem þýtt getur minna lagerhald og rekstraröryggi fyrir viðskiptavini. Ferli verkefna í umbúðavinnslu: • Formhönnun • Smíðaður er nýr stans eða nýttur stans úr stansasafni • Verkið er sett á prentplötu • Prentað • Stansað út á stansvél • Límt á límingarvél eða handlímt Spurningar & svör 1. Hvenær hófst umbúðaframleiðsla í límingardeild Prentmets? 2. Hvað er gert í límingardeild? 3. Hvað er stönsun og líming? 4. Hvað er stansamót (högg)? 5. Hvað er stansavél og hvað gerir hún? 6. Hvað gerist eftir að búið er að stansa öskju? 7. Hvað gerist þegar búið er að hreinsa frá öskjunum? 8. Hvar fer frágangur og pökkun fram? 9. Hvað gerir límingarvél? 10. Hverjar eru algengustu tegundir límingar? 11. Hvernig lím er notað? 12. Hvað gerist þegar öskjurnar koma af pressubandinu? 13. Hvert fer brettið? 14. Hvernig verkefni eru tekin? 15. Hver er framleiðslugeta límingarvélarinnar? 16. Hvað gerir gluggalímingarvél / Double Lines? 1. Hún hófst í maí 2003. 2. Öskjur, möppur og fleiri umbúðir eru stansaðar og límdar. 3. Stönsun og líming felst í því að taka arkir úr (misþykkum) pappír og breyta þeim í öskjur, möppur o.þ.h., með eða án límingar. 4. Það er u.þ.b. 15 mm þykk krossviðarplata sem teiknað hefur verið á form, útlínur og brot. Platan er söguð og á hana settir hnífar, brotjárn og rifgötunar- Fróðleiksmolar Gott að vita Vegna fjölda véla í límingu og stönsun fara verkin fjótt og örugglega í gegn um framleiðslu hjá okkur. Við erum með límingarvél sem límir plast inn í glugga á öskjum og er það viðbót við allt annað sem við gerum. Fiskiaskja í stönsun Bartosz vinnur í öskju Sælgætisaskja í límingarvél

RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==