Prentmet Odda Skólinn

23 hnífar eftir því sem við á. Síðan eru gúmmísvamplistar límdir meðfram hnífunum svo örkin losni frá. Einnig eru skörð sett í hnífa (hefting) svo örkin hangi saman á leið sinni gegnum stansavélina. 5. Stansavél er vél sem tekur arkir af palli (mötun), færir hverja örk að grípurum, þar sem hliðarhjól færir hana að merki sem staðsetur (registerar) svo örkin komi á réttum stað undir höggið (stönsunina). Örkinni er síðan þrýst niður á mótplötuna þar sem hnífar fara/skera í gegn og brot (skarð/geil) myndast. Þaðan færist örkin á næsta stig sem er úrtaka, hreinsun á afskurði (stripping). Þar næst kemur frálag, arkir stokkast á pall. Einnig er hægt að hleypa upp efni í sama mót (embossment). 6. Eftir þetta ferli er fullnaðarhreinsun framkvæmd með loftknúnum fleyg eða raftæki með tannkeðju. Öskjurnar eru þannig aðskildar því oft eru fleiri en ein askja á örk. 7. Öskjum er raðað á pall og fara síðan í frágang og/eða pökkun. 8. Ef handlíma þarf öskjur fara þær í frágangsdeildina en annars er gengið frá þeim innan deildar. 9. Ef um hólk er að ræða forbrýtur vélin öskjuna (1. og 3. brot), límber hliðarflapa og leggur öskjuna saman (2. og 4. brot). Síðan færast öskjurnar að pressubandi sem þær fara í gegnum á meðan límið þornar. 10. Það eru sexhorna- og fjögurrahorna líming, áfast lok, display, patentbotnar o.fl. 11. Límið getur verið heitt eða kalt eftir efninu sem verið er að líma. Límið er ýmist borið á með hjóli eða því sprautað. 12. Öskjunum er raðað í kassa, þeir merktir innihaldi og eintakafjölda og að lokum staflað á bretti. 13. Brettið er sett á lager til afgreiðslu. 14. Verkefnin eru afar fjölbreytt. Allt frá því að vera litlar Ópalöskjur upp í stórar 20 lbs. umbúðir fyrir sjávarfang. 15. Það er afar misjafnt og fer alfarið eftir eftir umfangi umbúðanna. Ef vélin er fullmönnuð er hægt að framleiða allt að 50 þús. Ópal- öskjur á klukkustund svo dæmi sé tekið. 16. Gluggalímingarvél / Double Lines límir glæra glugga inn í öskjur eins og algengt er með kökuöskjur, sushibakka og aðrar matvælaöskjur þar sem varan þarf að sjást í gegnum öskjuna.

RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==