24 Bókbandsdeild • Bókband • Bókvinnsla • Frágangur Í bókbandsdeild fer fram lokafrágangur á blöðum og bókum. Bókband er sú aðferð að binda saman blaðsíður þannig að þær myndi bók. Til eru ýmiskonar bindingar og mismunandi aðferðir að festa blaðsíðurnar saman. Sumar bækur eru límdar saman, í svokallaða límhefta kilju, og mega vera með harðspjalda eða ekki. Aðrar bækur eru heftar saman eða bundnar saman með gormi. Bókband felur í sér þætti á borð við húðun, upphleypingu, stönsun, rifgötun, borun, brot og fellingu. Við hér í Prentmeti Odda státum af úrvals fagfólki, sem er sérhæft, þjálfað og menntað í hönnun, umbroti, prentun og bókbandi á bókinni þinni. Bókaprentun er vandmeðfarið ferli þar sem huga þarf að hagkvæmni og fallegu og sölulegu útliti. Við kappkostum að veita þér bestu þjónustu og leiðsögn og að skila þér góðum bókum. Meðal verkefna sem hafa verið unnin hjá okkur eru listaverkabækur, ævisögur, fræðibækur, skáldsögur, ljóðabækur, dagbækur og fleira. Stolt okkar eru listaverkabækurnar sem við höfum prentað, en þær krefjast bæði hágæða prentunar og fallegs og vel unnins bókbands. Bókavinnsla okkar gefur mikla möguleika. Við bjóðum alhliða bókavinnslu í fullkominni framleiðslulínu. Hvort sem það eru kiljur eða harðspjaldabækur, litlar eða stórar bækur, þá leysum við verkið vel afhendi. Við bjóðum einnig frumlega unnar kápur með ýmiskonar lakkáferð, hlutalökkun, upphleypingu, þrykkingu, gyllingu og stönsun. Við höfum jafnan mikið úrval af pappír og bókbandsefnum. Viðskiptastjórar okkar aðstoða þig fúslega við að finna réttu lausnina fyrir bókina þína. Spurningar & svör Bókband 1. Hvað er bókband? 2. Hvaða menntun hefur starfsfólkið í deildinni? 3. Hvað gerir skurðarmaður? 4. Hvaða eiginleika þarf skurðarmaður að hafa? 5. Hvað þarf að hafa í huga þegar verkefni er stillt inn í brotvél? 6. Hver eru algengustu brotin? Gormar Fræsing Heft tímarit Fróðleiksmolar Arkaskrið Það gerist þegar arkir hliðrast í broti, t.d. í innístungu útskoti. Saurblað Saurblað er blaðsíða sem er límd við bindi harðspjalda bókar til að festa bókarkubbinn við kápuna. Þau eru oft úr lituðum þykkum pappír. Sumir segja að þau hafi upphaflega verið sett á bækur til að verja þær fyrir óhreinindum.
RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==