25 7. Hvað er hægt að brjóta stærst og hvað minnst? 8. Hvað tekur langan tíma að stilla inn verkefni? 9. Hvað annað en að brjóta er hægt að gera í brotvél? 10. Hvað gerir heftivél? 11. Hverjar eru lágmarks- og hámarksstærðir sem heftivélin ræður við? 12. Hvað er misbrot á pappírsörkum? 13. Hvað gerir misbrot í heftingu og er það nauðsynlegt? 14. Getur kápustöðin fellt og brotið allan pappír? 15. Hvað er hægt að setja mörg hefti í sama bækling eða blað? Bókband 1. Bókband er löggilt iðngrein við að binda inn bækur og ganga frá öðru prentuðu efni, og gera upp eldri prentgripi, ýmist í vél eða höndum. 2. Starfsfólkið er bæði löggildir bókbindarar frá Iðnskólanum í Reykjavík og ófaglært. Meðalnámstími er þrjú ár að meðtöldu grunnnámi. Undir vissum kringumstæðum getur allt sérnám í greininni farið fram í fyrirtæki og tekur þá 72 vikna starfsþjálfun við að loknu grunnnámi í skóla. Meginmarkmið námsins er að gera nemendum kleift að öðlast þá þekkingu og færni sem bókbindurum er nauðsynleg í störfum sínum. Náminu lýkur með sveinsprófi er veitir rétt til starfa í greininni og til inngöngu í nám til meistaraprófs. 3. Sker pappír fyrir og eftir prentun í ákveðnar stærðir og í samræmi við eftirvinnslu ef einhver er. 4. Útsjónarsemi, þekkingu á ferli prentverks og mikla þolinmæði. 5. Það þarf að athuga útskot, blaðsíðutöl, brotastrik og sjá til þess að myndir og línur passi saman. Einnig þarf að athuga hvort fræsa eigi eða hefta verkefni, því ef það er fræst þarf að rifgata kjölinn. 6. Algengust eru 8 og 16 síðna brot fyrir heftingu og fræsingu og sex síðna túristabæklingarnir svokölluðu. 7. Stærsta pappírsörk sem unnt er að brjóta er 78x104 cm og sem minnsta brot má nefna málsháttarmiða í páskaegg. 8. Innstillitími getur verið allt frá því að vera enginn (ef næsta verkefni er eins), og upp í fleiri klukkustundir, t.d. við landakortabrot. 9. Það er hægt að rifgata, skera, fella og líma, t.d. pylsubréf. 10. Stingur saman brotnum örkum, heftar í kjölinn og sker í tilsett mál í þrískera. 11. Vélin getur heftað og skorið allt frá 10 x 9.2 cm (séu 2 saman og skorið á milli) og upp í 48 x 30.5 cm. 12. Misbrot kallast það þegar pappír er hafður síðari annaðhvort á fremri eða aftari hluta pappírsarkar. 13. Það virkar sem gríparakantur og hjálpar vélinni að opna arkir svo hægt sé að raða saman á færibandið fyrir heftingu. Það er ekki nauðsynlegt því nota má sogblöðkur ef misbrot vantar en þá munar töluverðu á hraðanum. 14. Kápustöðin miðast við minnst 90 g og mest 300 g þykkt. 15. Fræðilega séð, fjögur í einu. Bókvinnsla 1. Hvað er bókavinnsla? 2. Hvað eru margar vélar notaðar í bókavinnslu hjá okkur? 3. Hvað gerir brotvél? 4. Hvað gerir saurblaðavél? 5. Hvað gerir upptökuvél? 6. Hvað gerir saumavél? 7. Hvað gerir límingarvél? 8. Hvað gerir þrískeri? 9. Hvað gerir rúninga- og falsbarningarvél? 10. Hvað gerir bindaísetningarvél? 11. Hvernig eru bindi búin til? 12. Hvernig er bók saumuð í kápu?
RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==