26 13. Hvernig er bók fræst í kjöl? 14. Hvernig eru möppur gerðar? Bókavinnsla 1. Í bókavinnslu er t.d. unnið með bækur, tímarit, möppur og matseðla svo eitthvað sé nefnt. 2. Hjá okkur eru á bilinu 8–10 vélar sem við notum, en þær eru: saurblaðalímvél, upptökuvél, saumavél, límingarvél, þrískeri, rúnninga- og falsbarningarvél, fræsari, inní-setningarvél, bindagerðarvél og gyllingarvél. 3. Arkirnar fara (fyrst) í brotvél sem brýtur þær. Stilla þarf vélina inn á brotastrik og athuga útskot (blaðsíðutal). Passa þarf að arkirnar séu nógu stórar og í samræmi við þá stærð sem bókin á að skerast í. 4. Saurblöðin eru (þar næst) límd á síðustu og fyrstu örk í saurblaðavél. Ef um sérprentuð saurblöð eru að ræða verður að passa upp á að saurblöðin séu límd á réttan stað (snúi rétt o.s.frv.) 5. Arkirnar fara (síðan) í upptökuvél sem raðar þeim saman. Passa þarf að raða örkunum í réttar stöðvar, 1. örk í fyrstu stöð o.s.frv. 6. Þegar arkirnar (bókin) koma úr upptökuvélinni eru þær settar í saumavél. Vélin notar tvinna sem er gerður úr sérstöku plastefni sem bráðnar við hita. Tvinninn er saumaður með nálum við kjölinn, endarnir bræddir og festir við arkirnar. Stilla þarf bæði íleggjara og nálar vel. 7. Eftir að búið er að sauma arkirnar/bókina er límdur borði á kjölinn í sérstakri límingarvél. Stilla þarf límvalsana nákvæmlega, borðann sem límdur er á kjölinn og pressuna á kilinum. 8. Þegar bókin kemur úr límingarvélinni fer hún í þrískera sem sker bókina á þrjá vegu. Stilla þarf þrískerann mjög vel til þess að bókin falli vel inn í bindið. 9. Þegar búið er að skera bókina er hún sett í rúninga- og falsbarningarvél sem rúnar bókina (kjölinn) og falsber. Stilla þarf vélina vel svo að bókin fái fallegan rúning. Eftir að bókin kemur úr rúninga- og falsbarningarvél má líma kjölkraga á hana til skrauts. Þá er bókin tilbúin til ísetningar í bindi. 10. Þegar bókin kemur úr rúninga- og falsbarningarvélinni fer hún í gegnum bindaísetningarvél sem límir bókina inn í bindið. Vinna við bindaísetninguna krefst mikillar nákvæmni. 11. Fyrsta skref: Pappi er skorinn niður. Passa þarf að pappinn sé ekki hornskakkur. Pappi 2 – 2,5 mm þykkur er skorinn í ákveðna stærð (eftir stærð bókar). Annað skref: Klæðning er skorin niður. Passa þarf að klæðningin sé 1,5 cm stærri á hvern kant en bindið sem er tvö pappaspjöld og lauskjölur. Þriðja skref: Eftir að búið er að skera niður pappann og klæðninguna eru þau sett í bindagerðarvél sem límir saman pappa, lauskjöl og klæðningu. Fjórða skref: Þá er komið að gyllingu sem er með ýmsum hætti. Stilla þarf hitann rétt því efni þurfa mismikinn hita. Einnig þarf að stilla þrýstinginn rétt. Fimmta skref: Þegar búið er að gylla bindið er bindið og bókin sett í bindaísetningarvél sem límir bókina inn í bindið og pressar hana. 12. Fyrst eru arkirnar brotnar (sjá nr. 3), þaðan fara arkirnar í upptökuvél (sjá nr. 5) og síðan í saumavél (sjá nr. 6). Eftir að búið er að sauma arkirnar fer kiljan í fræsilínuna þar sem lím er borið á kjölinn. Hliðarlím er sett sirka 5mm upp á hliðar fyrstu og síðustu blaðsíðu og kápa sett á. Eftir það fer kiljan eftir færiböndum til þrískera sem sker kiljuna á þrjá vegu. 13. Arkirnar fara í brotvél sem brýtur þær (sjá nr. 3). Stilla þarf vélina inn á brotastrik og athuga útskot (blaðsíðutal). Passa þarf að arkirnar séu nógu stórar og í samræmi við þá stærð sem bókin á að skerast í. Örkunum er svo raðað í upptökuvélina (sjá nr. 5) sem er hluti af fræsilínu. Arkirnar koma uppteknar í réttri röð í fræsara þar sem er fræst af kili sirka 3 mm (1 mm ef fræsilínan er ekki notuð), lím borið á kjöl og sirka 5 mm upp á hliðar. Kápa er síðan sett á límdu arkirnar. Fer síðan eftir fræsara á færiböndum til þrískera þar sem kiljan er skorin á þrjá vegu. 14. Fyrsta skref: Byrjað er á því að skera niður pappann og sníða eftir stærð möppunnar. Annað skref: Eftir að búið er að skera niður pappann er klæðningin skorin niður. Klæðningin þarf að vera 1,5 cm stærri á hvern kant en bindið er. Þriðja skref: Þegar búið er að skera niður pappann og klæðninguna eru þau sett í bindagerðarvél sem límir pappaspjaldið inn í klæðninguna og brýtur inn á öllum hornum.Fjórða skref: Eftir að búið er að klæða möppuna er pappír límdur inn á spjaldið. Pappírinn á að vera 5 mm minni á hvern veg en sjálft spjaldið. Fimmta skref: Eftir að búið er að líma pappír inn á spjaldið er það fellt í fellingarvél með tveimur fellingum sem fer eftir þykkt möppunnar. Sjötta skref: Eftir að búið er að fella möppurnar eru þær settar í járningarvél sem hnoðar járnið í spjaldið.
RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==