Prentmet Odda Skólinn

27 Frágangur 1. Hvert er hlutverk frágangsdeildar? 2. Hvað er að blokka? 3. Hvað er að setta? 4. Hvað getum við gatað lítið? 5. Hvað getum við gatað stórt? 6. Hvað getum við gormað þunnt? 7. Hvað getum við gormað þykkt? 8. Hvað er að hornskella? 9. Hvað ber að hafa í huga við heftingu? 10. Hvað ber að hafa í huga við plöstun? 11. Hvað er laminering? 12. Hvaða munur er á lamineringu og plöstun? 13. Hvað ber að hafa í huga við innpökkun? 14. Á hvaða tíma dags er álagið mest? 15. Hvaða verk eru erfiðust fyrir deildina? 16. Hvaða eiginleika er gott að hafa í þessu starfi? Frágangur 1. Hlutverk frágangsdeildar er að fullvinna verkin og afgreiða þau út úr húsi, ásamt því að vinna þau verk sem vélarnar ráða ekki við. 2. Blokkun er þegar ákv. fjöldi blaða (oftast 50) er settur saman með hörðu baki/kartoni undir og raðað í stafla sem síðan er límborinn (blokkarlím). Þegar límið er þornað er staflinn skorinn í sundur. 3. Settun er líming á NCR-pappír með sérstöku, afar þunnu (NCR-) lími. NCR-pappír er sjálfkalkerandi og samanstendur af toppi, milliriti/-ritum og botni. Þessi pappír hefur þá eiginleika að líma saman eitt sett, topp, millirit og botn án þess að öll stæðan límist saman. Farvi á límfleti skemmir eiginleika pappírsins. 4. Götunarvélin tekur minnst 138 mm. Ef blaðið er minna er hægt að handgata. 5. Hámarksstærð í gormagötunarvél er 330 mm Það er hægt að gorma/gata A3 (420 mm br.) allt að 12 mm handvirkt. 6. Ekkert lágmark er á fjölda blaða í gormun. Hægt er að gata eitt blað. 7. Venjulegur gormur fer upp í 12 mm þykkt á bók. Við getum gormað/gatað bók sem er ekki stærri en 330 mm, allt að 23 mm en þá er notaður kambur með stærri götum og gormur með færri lykkjum. 8. Hornskella er að rúnna horn. Hægt er að rúnna eitt eða fleiri horn. 9. Heftin verða að vera af réttri lengd og stilla þarf þrýsting á heftaranum eftir stærð heftanna. 10. Athuga m.a. hvort spjaldið/kortið á að vera vatnshelt og hvort umhverfis það eigi að vera kantur/rammi því þá þarf að skera kortið í rétta stærð fyrir plöstun. Annars er best að plasta í stærðunum A4 og/eða A3 (yfirstærð), stærra á tvo vegu. Ekki má lakka fyrir plöstun. 11. Laminering er plasthúðun. 12. Munur á lamineringu og plöstun liggur aðallega í áferðinni. Laminering er (oftast) mjög þunn plasthúð, sett aðallega öðrum megin. Plöstun er yfirleitt þykkara plast, sett beggja vegna. Ef beðið er um lamineringu á verkseðli er verkið sent annað (úr húsi). Laminering er annaðhvort mött eða glans en plöstun er (yfirleitt) með glansáferð. 13. Mikilvægt er að pakka þétt og snyrtilega inn og merkja síðan pakkana vel, þ.m.t. innihald og magn. 14. Álagið er mest eftir kl. 15.00 15. Erfiðustu verkin eru þau sem eru seinunnin og koma (allt) of seint til vinnslu. 16. Vandvirkni og sjálfstæði eru eftirsóknarverðir eiginleikar. Einnig er nauðsynlegt að geta unnið undir álagi sem er ekki óalgengt hér á bæ.

RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==