28 Fróðleiksmolar Um Svaninn Svansmerkið er opinbert um- hverfismerki Norðurlandanna sem tekur tillit til alls framleiðslu ferlis vöru og þjónustu. Svansvottuð vara er betri fyrir umhverfið og heilsuna. Svansvottun er auðveld leið til að miðla umhverfisstarfi fyrirtækis og sendir neytendum skýr skilaboð um að fyrirtækið vinni markvisst að því að draga úr umhverfisáhrifum í allri fram- leiðslu vörunnar. Svansmerkið er áreiðanleg umhverfisvottun sem 88% Íslendinga þekkja. Evrópublómið Blómið er umhverfismerki Evrópusambandsins á vörum og þjóustu. Blómið sýnir að framleiðslan er viðurkennd og skrásett samkvæmt nákvæmu ferli sem snýr að áhrifum vörunnar á umhverfi sitt, allt frá hráefnum til affalls. Umhverfi og pappír Umhverfi Prentmet Oddi er með Norræna umhverfismerkið Svaninn, sem er staðfesting á góðum árangri í umhverfimálum. Vottunin þýðir að fyrirtækið er í fremstu röð hvað varðar jákvæð áhrifa á umhverfi og heilsu. Fyrirtækið fékk svansvottun árið: • Prentsmiðjan Oddi - 2009 • Prentmet í Reykjavík - 2011 • Útibú Prentmets - 2012 Svansvottun byggist á óháðri vottun og skilyrðum sem taka tillit til alls lífsferils vöru og þjónustu. Kröfurnar eru sértækar og hertar reglulega. Það er frjáls þátttaka. Tilgangur Svansvottunar er að ýta undir sjálfbæra þróun samfélagsins svo að komandi kynslóðir hafi jafna möguleika og við til að mæta þörfum sínum. Alls er hægt að votta um 70 mismunandi vöru- og þjónustuflokka. Út frá viðskiptalegum sjónarmiðum borgar það sig einnig að vera með Svansvottun því að bæði stofnanir og fyrirtæki leggja mikla áherslu á það í innkaupum, að versla við umhverfisvottað fyrirtæki. Kröfur Svansins fyrir prentsmiðjur eru mjög strangar, sérstaklega hvað varðar efnanotkun, sem er þýðingarmesti umhverfisþátturinn í rekstri prentsmiðja en auk þess er: • Lögð áhersla á notkun umhverfismerkts eða endurunnins pappírs við prentunina. • Hlutfall úrgangspappírs við framleiðsluna lágmarkaður. • Flokkun úrgangs ásamt réttri meðhöndlun hættulegra efna er tryggð. • Hvatt til notkunar endurnýjanlegra orkugjafa og lágmörkunar á orkunotkun við framleiðsluna. • Hvatt til þess að valdar séu umhverfismerktar vörur og þjónusta í innkaupum. • Gerð er krafa um reglulega þjálfun og fræðslu starfsmanna ásamt ferlum til að stýra umhverfisstarfi. • Tryggt er að fyrirtækið uppfylli öll lög og reglugerðir sem eiga við starf- semina. Svansviðmiðin taka tillit til heildarferils, allt frá efnanotkun tilflokkunar úrgangs.
RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==