29 • Miðað er við tonn af framleiddri vöru. • Sértakar kröfur eru fyrir hverja og eina prentaðferð - 5% reglan. • Að lágmarki 25% samþykktur / vottaður pappír (Svans- eða blómsvottaður). Prentfarvinn er unninn úr endurnýtanlegum hráefnum. Í honum eru jurtaolíur og ekki notuð efni sem eru eitruð eða skaðleg. Aðrar kröfur um viðmið Svansins • Gott skipulag / gæðastýring • Uppfylla lög og reglugerðir • Árleg umhverfisskýrsla • Þjálfun starfsmanna • Markaðssetning verður að uppfylla kröfur Svansins Birkiátakið Prentmet Oddi er einn aðal stuðningsaðili Birkiátaksins. Hlutur Prentmets Odda er að gefa umhverfisvæna pappaöskju sem er hönnuð og framleidd hjá prentsmiðjunni sem almenningur fær til þess að safna birkifræjum í. Á öskjunni má finna allar helstu upplýsingar um þetta góða átak. Samgöngusamningur Samgöngusamningur er gerður við starfsmenn sem vilja kjósa sér umhverfisvænan ferðamáta. Ganga, hjóla eða taka strætó í vinnuna að lágmarki þrisvar sinnum í viku. Þeir fá samgöngustyrk frá fyrirtækinu sem er strætókort sem nemur 12 mánuðum, á sama verði og 9 mánuðir. Gullnáman Þegar við sjáum að við getum ekki fullnýtt pappírsörk er örkin skorin niður og afskurður geymdur í gullnámu. Prentum og stönsum síðan í vélum sem ná minna arkarformati. Afskurði sem við náum ekki að nýta gefum við eða seljum á vægu gjaldi til skóla og annarra aðila. Valdar verða vistvænar bifreiðar eins og möguleiki er frá árinu 2022. Uppbygging viðmiðanna Svansmerkið Hráefni Framleiðsla Notkun Úrgangur
RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==