Prentmet Odda Skólinn

34 Venjulegur tvíhúðaður mattur myndapappír í þyngdinni 100 g/m₂ hefur gjarnan þykktarstuðulinn 1µ (mælist 1/10 úr millimetra að þykkt). Venjulegur óhúðaður offstpappír sömu þyngdar hefur stuðulinn 1.3 og sérlega „blásinn“ bókapappír getur farið upp í stuðulinn 2.0, þannig að þykkt á tveim örkum sömu þyngdar getur verið mjög mismunandi. Pappír eða karton Flest karton er samsett úr nokkrum mismunandi lögum efna og munurinn á þeim efnum sem notuð eru í hverja samsetningu skiptir kartoni í fjóra meginflokka. Nokkur verðmunur er á kartoni eftir því hvaða tegund er valin. Karton er framleitt í mörgum mismunandi þyngdum og þykktum en almennt kallast pappír karton í þyngdum milli 160 g/m₂ (gramm/ fermetra) til 600 g/m₂. Karton getur verið framleitt eftir sér óskum kaupandans, t.d. er karton sem notað er undir matvæli sem eru fryst eða gefa frá sér raka, gerð rakaheld með sérstökum í blöndunar- efnum. Flest karton sem framleitt er í Evrópu er með húðað ytra borð sem eykur gæði prentunar og gefur kost á ýmiss konar lökkun.

RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==