5 Prentmets Odda skólinn Prentmetskólinn var stofnaður árið 2005 fyrir starfsmenn Prentmets, sem núna er Prentmet Oddi. Það hefur sýnt sig að vel upplýstur starfsmaður hefur meiri starfsánægju og skilar betri starfsanda á vinnustað. Mjög mikilvægt er að allir hafi á tilfinningunni að þeirra störf séu nauðsynlegur hlekkur í keðju fyrirtækisins, að virðing sé borin fyrir störfum innbyrðis og að nokkur innsýn sé í verkefni samstarfsfólks. Hvað stendur M E T fyrir í Prentmets Odda skólanum? M - Menntun – Miðlun þekkingar – Metnaður. E - Endurmenntun – Endurgjöf. T - Taktur við tímann í þekkingu og þjónustu – Tækni – Tækifæri til að þroskast og þróast. Framkvæmd 1. Deildarstjórar útbúa 10–20 spurningar og svör um mikilvægustu atriðin í sinni deild. 2. Starfsmenn eru fræddir um starfsumhverfið og starfsemina hjá sínum nánasta yfirmanni. 3. Nemendur eru 5-7 talsins á klukkustunda fræðslustöð. 4. Ekki er alltaf sama fólkið saman í fræðslu í hverri fræðslustöð. Reynt er að „rótera“ fólki svo það kynnist sem flestum á vinnustaðnum. Það þarf því heldur ekki að vera að bindast alltaf sama hópnum. 5. Eftir kynninguna kvittar leiðbeinandinn fyrir þátttöku hjá nemendunum í námsheftið. 6. Eftir hverja fræðslustöð gerir hópurinn saman mat sem hann skilar til framkvæmdastjóra- mannauðs og markaðsmála. 7. Þegar nemandi hefur lokið að fara á allar fræðslustöðvar þá fær hann kynningu á framleiðsluferli vöru. Hvernig verður bók til? Hvernig verða umbúðir til? 8. Allir fá pappírs- og umhverfisfræðslu. 9. Lokastigið í skólanum er að geta haldið létta kynningarræðu um Prentmet Odda: • Hvað gerir Prentmet Oddi? • Hvenær var fyrirtækið stofnað? • Hvað eru margir starfsmenn? • Hver eru gildi Prentmets Odda? • Hvað gerir þú í Prentmeti Odda? • Hvernig vörur framleiðið þið? • Hver er munurinn á Prentmet Odda og öðrum prentsmiðjum? • Hvert stefnið þið? 10. Þegar starfsmaður hefur lokið þessum hluta námsins fær hann viðurkenningarskjal um að hann hafi lokið þessu almenna námi og er titlaður ,,Sendiherra Prentmets Odda ”. 11. Prentmets Odda skólanum lýkur aldrei því starfsmenn Prentmets Odda eru í stöðugri símenntun og sífellt að miðla þekkingu sín á milli.
RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==