6 Söludeild Söludeild tekur á móti viðskiptavinum, verkpöntunum og nauðsynlegum upplýsingum vegna bókhalds og vinnslu. Þar eru verkefnin skráð inn, þeim gefin verknúmer og gerðir reikningar. Hlutverk og markmið Hlutverk söludeildar er að afla verkefna fyrir fyrirtækið - engin sala, engin verkefni, ekkert fyrirtæki. Viðskiptavinurinn kemur með fjármagn inn í fyrirtækið og greiðir því launin okkar. Hann er undirstaða fyrirtækisins. Það sem sölumenn þurfa að standast við er snyrtimennsku í klæðaburði, svara síma og vefpósti hratt og skilmerkilega sem mun á endanum skila sér í aukinni sölu. Einnig kurteisi við viðskiptavini, jákvæðni, lesa/skynja viðskiptavininn og haga sér eftir því. Flest viðskipti frá Prentmeti Odda fara aðallega í gegnum síma, vefpóst og með heimsóknum í fyrirtæki. Helstu markmið innan fyrirtækisins er að verkið gangi snurðulaust í gegn frá pöntun til afhendingar. Sjái starfsmenn fram á tafir á verki er mjög mikilvægt að þeir láti sölumann vita svo hægt sé að gera ráðstafanir. Tilboðsgerð og sala Sölumenn notast við aðfengna viðskiptamannalista í gegnum sölukerfi eða lista sölumannanna sjálfra. Hver sölumaður hefur sinn viðskiptavinahóp og sinnir honum ásamt því að leita ný rra viðskiptavina. Þegar reikna á út prentverk er aðalega unnið út frá tilboðum. Oft leitar viðskiptavinur tilboða hjá nokkrum smiðjum og tekur því hagstæðasta. Ekki endilega því lægsta heldur frá þeim sem hann treystir best. Þegar reikna á tilboð þarf að hafa í ýmislegt í huga við útreikning; Stærð, síðufjölda, liti, pappír, upplag, frágang, afgreiðslutíma. Bestu verkefnin eru þau verk sem henta best í vélarnar okkar og gefa mest af sér þar sem vinnslutími er eðlilegur eða þar sem rukkað er fyrir forgang (+ 15–30%). Viðskiptavinurinn Ef koma upp kvartanir með prentverk þarf sölumaðurinn að hafa í huga að viðskiptavinurinn hefur alltaf rétt fyrir sér. Látum hann trúa því, heyra það. Allir þættir málsins eru kannaðir og reynt að finna ásættanlega lausn fyrir alla aðila. Reynsla og menntun Æskilegt er að sölumenn hafi fagþekkingu og/eða reynslu í prentverki. Sölumaðurinn þarf að hafa góða þekkingu á vörunni sem hann er að selja. Góður sölumaður þarf að geta starfað sjálfstætt, vera jákvæður, leita og sækjast eftir þekkingu, hugmyndaauðgi, geta tekið ákvarðanir fljótt og fagmannlega ásamt því að vera sveigjanlegur. Góður sölumaður selur ekki á lægsta verði. Fróðleiksmolar Vinnuseðlar Eru seðlar sem eru gerðir fyrir verkið, mikilvægt að sölumaður vandi sig við útfyllingu vinnuseðla til að koma í veg fyrir mistök í framleiðslu. Einnig að starfsfólk í framleiðslu lesi vinnuseðla og geri athugasemdir ef eitthvað er óljóst. Viðskiptavinur Er aðili sem kemur með fjármagn inn í fyrirtækið og heldur fyrirtækinu gangandi. Kristján viðskiptastjóri með viðskiptavini Friðrik - viðskiptastjóri Örvar viðskiptastjóri með viðskiptavini
RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==