Prentmet Odda Skólinn

7 Spurningar & svör 1. Hvert er hlutverk söludeildarinnar? 2. Hvaða þýðingu hefur viðskiptavinurinn? 3. Hvað ber að hafa í huga við móttöku/umgengni við viðskiptavini? 4. Fara öll samskipti við viðskiptavinina fram í Prentmeti Odda? 5. Hvernig er kynningu háttað? 6. Hvernig er æskilegt ferli verka? 7. Hvaða aðferðir, tæki og tól eru notuð í starfinu (t.d. listar, tilboð)? 8. Hvað ber að hafa í huga við útreikning á prentverki? 9. Hvernig er tekið á mótbárum/kvörtunum? 10. Hvaða menntun og reynslu þarf sölumaður að hafa? 11. Hvaða eiginleika þarf góður sölumaður að hafa? 12. Hvað er skemmtilegast við sölumennsku? 13. Hvað er erfiðast við sölumennsku? 14. Hvernig höldum við góðum vinnuanda í deildinni? 1. Að afla verkefna fyrir fyrirtækið - engin sala, engin verkefni, ekkert fyrirtæki. 2. Viðskiptavinurinn kemur með fjármagn inn í fyrirtækið og greiðir því launin okkar. Hann er undirstaða fyrirtækisins. 3. • Snyrtimennsku í klæðaburði. • Svara síma og tölvupósti hratt og skilmerkilega - það stóreykur sölu. • Kurteisi við viðskiptavini og viðstadda starfsfélaga. • Jákvæðni. • Lesa/skynja viðskiptavininn og haga sér eftir því. 4. Nei. Aðallega í gegnum síma, tölvupóst og með heimsóknum í fyrirtæki. 5. Fyrst er hringt og óskað eftir fundi, annaðhvort hjá viðskiptavini eða hjá okkur. Á fundinum er Prentmet Oddi kynnt, boðið er upp á veitingar og falast eftir viðskiptum. 6. Að verkið gangi snurðulaust í gegn frá pöntun til afhendingar. Sjái starfsmenn fram á tafir á verki er mjög mikilvægt að þeir láti sölumann vita svo hægt sé að gera ráðstafanir. 7. • Notast er við aðfengna viðskiptamannalista, t.d. frá Skýrr eða lista sölumanna sjálfra. Hver sölumaður hefur sinn viðskiptavina hóp og sinnir honum ásamt því að leita nýrra viðskiptavina. • Aðallega er unnið út frá tilboðum. Oftast leitar viðskiptavinur tilboða hjá nokkrum smiðjum og tekur því hagstæðasta. Ekki endilega því lægsta heldur frá þeim sem hann treystir best. 8. Stærð, síðufjölda, liti, pappír, upplag, frágang og afgreiðslutíma. 9. Viðskiptavinurinn hefur alltaf rétt fyrir sér. Látum hann trúa því og heyra það. Allir þættir málsins eru kannaðir og reynt að finna ásættanlega lausn fyrir báða aðila. 10. Æskilegt er að hafa fag- og/eða viðskiptamenntun eða góða reynslu á sömu sviðum. 11. • Vera jákvæður og fylginn sér. • Geta starfað sjálfstætt. • Leita og sækjast eftir þekkingu. • Góða mætingu og viðveru. • Hugmyndaauðgi. • Geta tekið ákvarðanir. • Geta fengið fólk í lið með sér. • Vera fljótur að hugsa. • Sveigjanleika. • Sjálfsvirðingu og virðingu fyrir öðrum. 12. • Fjölbreytni, engir dagar eru eins. • Hreyfanleiki, sölumaður þeytist út og suður, innan sem utan fyrirtækis. 13. Að þurfa alltaf að vera í góðu formi. Alltaf tilbúinn með bjart bros, gott skap og snilldar svar hvað sem tautar og raular. 14. Aðalreglan er að ásælast ekki viðkiptavini annarra. Sölumaður getur þurft að afsala sér viðskiptavini auki það viðskiptin. Hagur fyrirtækisins gildir. Virðum hvort annað. Verum jákvæð, víðsýn og umburðarlynd.

RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==