Prentmet Odda Skólinn

8 Forvinnsludeild • Umbrot • Formhönnun • Útskot Umbrot Í umbrotsdeild starfa prentsmiðir og grafískir miðlarar. Hér fer fram undirbúningsvinna að prentgrip, hvort sem um er að ræða bók, tímarit, nafnspjald, veggspjöld, einblöðunga eða hvað annað sem er prentað. Umbrot er að öllu leyti unnið í tölvu. Sölumenn láta okkur fá verkseðil með útlistun á verkefni. Þeir senda okkur svo tilheyrandi gögn sem þarf að nota til umbrots, þ.e. texti og myndir, eða koma á tengslum við viðskiptavininn sem sendir gögnin beint til okkar með tölvupósti. Textinn kemur langoftast í Word og myndir sem JPG. Myndir sem við fáum sendar eru í misjöfnum gæðum og stundum þurfum við að laga þær til og litgreina í Photoshop. Texta og myndir setjum við svo inn í InDesign umbrotsforritið og röðum upp eftir kúnstarinnar reglum. Að gera verk tilbúin til prentunar Þegar búið er að samþykkja próförk þarf að gera verkið klárt fyrir prentun. Þá er vinnsluskjalið export-að í hágæða PDF skjal. File - Export - Adobe PDF (print) - Adobe PDF Preset: [prófíll frá Prentmets Odda með skurðarmerkjum]. Nauðsynlegt er að keyra út próförk á laserprentara sem fylgir með verkseðli. Verkseðillinn og próförkin er komið áleiðis í næstu vinnslustöð. Hvernig höldum við utanum skjölin? Áður en byrjað er á verki er búin til mappa með númerinu sem er á verkseðli. Mappan er sett á Server í „Geymslu“ og þar undir í Offset eða Digital eftir því sem við á. Efst í möppunni er skjalið eða skjölin sem á að prenta. Þar þarf líka að vera önnur mappa með vinnsluskjölunum, myndum og öðrum gögnum sem tilheyra verkinu. Spurningar & svör 1. Hvað er umbrot? 2. Hvaða tæki og tól notið þið í umbroti? 3. Hvað gerið þið í umbroti? 4. Hvernig verkefni fáið þið? Fróðleiksmolar InDesign Umbrotsforritið InDesign er algengasta á markaðnum og kom upphaflega um aldamótin síðustu, þar á undan voru notuð forrit á borð við PageMaker og QuarkXpress. Illustrator Teikniforritið Illustrator er notað til að teikna logo og meðhöndla Vektor-teikningar á borði við stanzateikningar og almenna grafík. Forvera og samkeppnisaðili þeirra á markaðinum var áður FreeHand sem var síðar keypt af Adobe. Gott að vita! Ekki er sniðugt að rugla notkunargildi InDesign og Illustrator saman. Þessi forrit er mjög ólík. InDesign er helst notað í umbrot og uppsetningu prentgripa en Illustrator er notað í meðhöndlun á vektorteikningum og logo-um. Það getur verið þungt í sniðum og hentar ekki fyrir stór verk. Guðbjörg fer yfir hönnun með viðskiptavini Prentgripur og ýmis prentverkfæri

RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==