9 5. Hvaða forrit notið þið aðallega? 6. Hvað notið þið aðallega í myndvinnslu? 7. Hvað notið þið aðallega í textavinnslu? 8. Hvað notið þið aðallega í umbroti? 9. Hvaða menntun hefur starfsfólkið í umbrotsdeild? 10. Hver eru erfiðustu verkefnin í umbroti? 11. Hvað er skemmtilegast? 12. Hvað er litgreining? 13. Hvað er skönnun? 14. Hvað þurfið þið að passa mest varðandi gæðamálin? 15. Hvernig er best að taka við verkum? 16. Hvað er það fyrsta sem maður gerir þegar brjóta á t.d. um bækling? 17. Hvaða forrit er notað fyrir hönnun? 18. Hver er munurinn á RGB og CMYK? 19. Hvað þarf að skila miklu efni fyrir hönnun á • Nafnspjaldi • Bréfsefni • Umslagi • Boðskorti 20. Hvaða upplausn á að nota á myndum m.t.t. pappírs o.fl.? 1. Umbrot er uppsetning á prentgripum stórum og smáum. 2. Í prentiðnaðinum eru notaðar hágæða tölvur. Við notum skanna til að skanna inn myndir og teikningar inn í umbrot. Þau forrit sem mest eru notuð í prentiðnaði eru Illustrator í teikningar og InDesign í umbrot og uppsetningar á prentverkum. Photoshop er notað til að vinna myndir. Acrobat Pro notum við í prófarkir eða breyta tilbúnum PDF-skjölum ef þarf og til að skila af okkur tilbúnu verki til prentunar. 3. Við tökum við gögnum frá viðskiptavini og setjum upp frá t.d. nafnspjöldum, reikningum, bréfsefnum, umslögum, boðskortum og allt upp í tímarit og bækur. 4. Við fáum allt milli himins og jarðar. Mest erum við þó í uppsetningu á smærri verkum en það hefur aukist að við séum að setja upp stærri verk. Við erum líka í einstaka tilfelllum að hanna auglýsingar fyrir fyrirtæki sem eru sendar í aðrar prentsmiðjur í blöð og tímarit. Einnig fyrir sjónvarp og net. 5. Við erum aðallega að nota teikni- og umbrotsforritin Illustrator og InDesign til að vinna prentgripi. Photoshop til að vinna myndir og svo notum við mikið Acrobat Pro til að skila frá okkur verkum í prófarkir og áframhaldandi vinnslu. 6. Eftirvinnsla mynda fer öll fram í Photoshop ef eitthvað á að gera meira við myndirnar. 7. Við erum ekki mikið í textavinnslu sem slíkri, en ef við erum að vinna texta fyrir umbrot er best að setja hann upp í Word. Ef við erum sjálf að vinna texta í umbrot hjá okkur vinnum við textann í umbrotsforritinu InDesign. 8. InDesign í umbrot á öllum verkum. 9. Grafískir miðlarar/Prentsmiðir frá Tækniskólanum - skóla atvinnulífsins. 10. Það getur verið hvað sem er. Það getur verið töluvert flókið að setja upp eitt nafnspjald eða koma saman heilu tímariti. En svo getur þetta verið mjög einfalt líka. Það sem okkur þykir kannski erfiðast er þegar við þurfum að vera að laga það sem viðskiptavinur skilar inn „tilbúnu“ umbrotnu í t.d. Word, Publisher eða öðrum slíkum forritum sem ekki eru ætluð til umbrots á verkum til prentunar í prentsmiðjum. 11. Að takast á við hvert verkefni fyrir sig. Leysa úr flóknum hlutum og að sjá verkið koma tilbúið úr prentun vel heppnað. Þetta er allt svo teygjanlegt. Sumum þykir gaman að öllu en öðrum leiðast uppsetningar á t.d. eyðublöðum og þess háttar. En ef maður hefur gaman af því sem maður er að gera er allt skemmtilegt. 12. Litgreining er þegar myndir eru litaleiðréttar og stilltar til áframhaldandi prentvinnslu. 13. Skönnun er þegar myndir eru teknar á pappírsformi eða filmu, settar á skanna og skannaðar inn á stafrænt (tölvutækt) form til áframhaldandi vinnslu í umbroti. 14. Að litir séu réttir, myndir í nægri upplausn og allar upplýsingar sem fylgja með verkinu séu réttar.
RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==