Súlur Áramótablaðið 2021-2022

36 Súlur, björgunarsveitin á Akureyri Seinnipart 28. desember lagði 10 manna hópur af stað frá Súlum, auk tveggja aðgerðarstjórnenda frá öðrum sveitum á svæðinu. Slæmt veður var stóran hluta leiðarinnar og mátti heita að Fjarðarheiðin væri ófær þegar við fórum þar yfir seint um kvöldið. Að morgni 29. desember var hafist handa við ýmis konar hreinsunar- og gæslustörf. Verkefnin voru fjölbreytt, m.a. vakta skriðusvæðið ef frekari merki væru um skriðuföll, fara í gegnum brak sem flutt var af skriðusvæði yfir á losunarsvæði til að leita verðmæta, hreinsa úr húsum og flytja verðmæti. Þetta var hörkuvinna, ekki alveg laus við leðju og skít en þarna var vel búið að hjálparmönnum í mat og drykk og gist við góðar aðstæður. Unnið var sleitulaust í tvo daga og komið heim seint að kvöldi 30. desember, svona rétt til að ná í síðasta dag flugeldasölu. Reynslan af svona ferð er ómetanleg, þótt fréttir og myndir segi mikið þá er það mikil reynsla að koma á staðinn og komast í beina snertingu við þær hamfarir sem þarna áttu sér stað. Áfallið er mikið fyrir svona lítið bæjarfélag, fólk stóð frammi fyrri því að hafa misst allt sitt, eða búa við áframhaldandi hættuástand svo vikum skipti og enn hafa menn áhyggjur af hreyfingu á stallinum ofan bæjarins. Mikill munur er þó að vinna þar sem ekki varð manntjón samanborið t.d. við vinnuna í snjóflóðunum 1995. Mikilvægt er fyrir björgunarsveitir að vera viðbúnar því svo virðist sem svona veðuröfgar og afleiðingar þeirra séu að verða algengari og mikilvægt að eiga búnað og verkfæri til að vinna í aurskriðum ekki síður en í snjóflóðum. Ingimar Eydal

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==